Gísli Gíslason yngri (Héðinshöfða)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Gísli Gíslason.

Gísli Gíslason yngri frá Héðinshöfða við Hásteinsveg 36, bóndi , verkamaður, bifreiðastjóri fæddist 15. mars 1940 í Birtingarholti við Vestmannabraut 61.
Foreldrar hans voru Gísli Gíslason skipasmiður, f. 13. nóvember 1902, d. 24. desember 1972, og kona hans Ásdís Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 10. ágúst 1913, d. 9. október 1995.

Börn Ásdísar og Gísla:
1. Unnur Gísladóttir húsfreyja á Akureyri og í Reykjavík, f. 10. ágúst 1934 í Reykjavík.
2. Haukur Gíslason vélstjóri í Eyjum, f. 29. október 1935 á Stóru-Heiði, d. 2. mars 1980.
3. Garðar Gíslason skósmiður í Kópavogi, f. 3. mars 1937 á Stóru-Heiði.
4. Guðrún Gísladóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1938 á Stóru-Heiði.
5. Sigríður Gísladóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1938 á Stóru-Heiði, d. 6. janúar 2024.
6. Gísli Gíslason bóndi á Geldingalæk á Rangárvöllum, f. 15. mars 1940 í Birtingarholti.
7. Þóra Gísladóttir, f. 6. ágúst 1941 í Héðinshöfða, d. 1. mars 1944.
8. Guðmundur Gíslason sjómaður, f. 2. nóvember 1942 í Héðinshöfða, d. 5. nóvember 1968.
9. Halldóra Gísladóttir, f. 20. júlí 1944 í Héðinshöfða, hrapaði til bana úr Hánni 17. maí 1954.
10. Sigurlaug Gísladóttir húsfreyja, f. 12. janúar 1946 í Héðinshöfða, d. 9. nóvember 2022.
11. Stefán Gíslason, f. 21. október 1948 í Héðinshöfða, d. af slysförum 22. apríl 1966.
12. Ólafur Gíslason verkstjóri, f. 12. nóvember 1949 í Héðinshöfða.
13. Kristrún Gísladóttir húsfreyja, f. 2. mars 1952 í Héðinshöfða.
14. Halldóra Gísladóttir húsfreyja, kennari, f. 30. september 1955 í Héðinshöfða.
15. Þóra Gísladóttir húsfreyja, f. 5. mars 1957 í Héðinshöfða.

Þau Sigríður giftu sig 1963, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Geldingalæk á Rangárvöllum 1964 til 1969. Þau skildu.
Gísli bjó á Hellu frá 1969, stundaði verkamannavinnu og bifreiðaakstur.

I. Kona Gísla, (25. maí 1963, skildu), er Sigríður Magnúsdóttir frá Minna-Hofi á Rangárvöllum, húsfreyja, saumakona, f. 13. september 1943, d. 21. desember 2018. Foreldrar hennar voru Magnús Ingvarsson bóndi á Minna-Hofi, f. 4. maí 1908, d. 29. júlí 1997, og kona hans Ingibjörg Sveinsdóttir húsfreyja, f. 29. júlí 1919, d. 18. júlí 1993.
Börn þeirra:
1. Óskar Ingi Gíslason, f. 28. janúar 1964.
2. Stefán Gíslason, f. 16. september 1966.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.