Gísli Finnsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. apríl 2019 kl. 15:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. apríl 2019 kl. 15:10 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Gísli

Gísli Finnsson fæddist 19. júlí 1903 í Borgarnesi og lést 2. maí 1983. Hann var íþróttakennari og bílstjóri. Bróðir Gísla var Sigurður Finnsson skólastjóri.

Fyrri kona hans var Valgerður Ólafía Eva Andersen frá Sólbakka. Þau skildu. Dætur þeirra voru Erla Jóhanna Elísabet Gísladóttir, f. 27. október 1927 d. 10. júní 2005, Sonja Hansína, f. 4. júlí 1931, d. 7. september 1987, og Guðfinna Eygló, f. 26. október 1933 d. 13. mars 2011.

Seinni kona Gísla var Margrét Guðmundsdóttir. Börn þeirra voru Hansína Sesselja, f. 11. mars 1943, Finnborg Bettý, f. 4. mars 1945, Guðmundur, f. 26. október 1947, og Finnur, f. 21. apríl 1949, d. 27. janúar 2005.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Gísli Finnsson.


Myndir


Heimildir

  • Minningargreinar í Morgunblaðinu, 17. júní 2005.