Friðrikka Ingibjörg Einarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. janúar 2020 kl. 14:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. janúar 2020 kl. 14:24 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Friðrikka Einarsdóttir.

Friðrikka Ingibjörg Einarsdóttir húsfreyja fæddist 22. febrúar 1890 á Seyðisfirði og lést 12. mars 1979.
Foreldrar hennar voru Einar Guðmundsson trésmiður, sjómaður, síðar útgerðarmaður á Seyðisfirði, að síðustu hjá dóttur sinni í Eyjum, f. 22. ágúst 1855, d. 25. febrúar 1935, og kona hans Oddný Pétursdóttir húsfreyja, f. 24. janúar 1858, d. 18. október 1913.

Friðrikka Ingibjörg var með foreldrum sínum á Þórarinsstaðastekk í Seyðisfirði 1890 og 1901.
Hún giftist Vilhjálmi Ágústi 1909 á Seyðisfirði. Þau bjuggu á Bólstað 1910 við fæðingu Friðriks Vigfúsar, en á Hnausum í lok ársins. Þau byggðu húsið Vallanes og bjuggu þar í lok árs 1912 með Harald son sinn nýfæddan, en Friðrik Vigfús hafði látist á árinu.
Vilhjálmur Ágúst lést 1913.
Friðrikka Ingibjörg fluttist til Seyðisfjarðar 1913, giftist Runólfi Sigfússyni frá Stóru-Breiðavík í Reyðarfirði 1915. Þau bjuggu á Seyðisfirði 1920 með 3 börn sín, fluttust til Eyja 1924 með 4 börn og Einar föður Friðrikku Ingibjargar.
Þau Runólfur bjuggu í Breiðavík (Kirkjuvegi 82) 1926, og enn 1930 með 6 börn. Einar faðir hennar dvaldi hjá þeim. Þau voru á Sæbóli, Strandvegi 50 1934.
Runólfur lést 1936. Friðrikka bjó í Eyjum til goss, en fluttist þá til Reykjavíkur, bjó með Oddnýju dóttur sinni og lést 1979.

Friðrikka Ingibjörg var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (29. september 1909 á Seyðisfirði), var Vilhjálmur Ágúst Scheving útgerðarmaður og bátsformaður, f. 5. ágúst 1888, d. 29. mars 1913.
Börn þeirra voru:
1. Friðrik Vigfús Ágústsson, f. 26. mars 1910, d. 17. júlí 1912.
2. Haraldur Ágústsson, f. 14. janúar 1912, d. 29. september 1914.

II. Síðari maður Friðrikku Ingibjargar, (5. september 1915 á Seyðisfirði), var Runólfur Sigfússon bátsformaður og vélstjóri, f. 16. febrúar 1893 í Stóru-Breiðavík í Reyðarfirði, d. 29. september 1936. Börn þeirra hér:
3. Oddný Hansína Runólfsdóttir matráðskona, f. 21. júní 1916, síðast í Reykjavík, d. 14. apríl 2005.
4. Einar Runólfsson vélstjóri, skipstjóri, f. 25. desember 1918.
5. Sigfríður Runólfsdóttir húsfreyja, f. 8. mars 1920, d. 12. nóvember 2017.
6. Gústaf Adólf Runólfsson vélstjóri, f. 26. maí 1922, drukknaði 7. janúar 1950.
7. Dagmar Runólfsdóttir, f. 4. nóvember 1926. Hún fór til Ameríku.
8. Sævaldur Runólfsson stýrimaður, vélstjóri, f. 10. ágúst 1930.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.
  • Ættir Austfirðinga. Einar Jónsson og fleiri. Austfirðingafélagið í Reykjavík 1953-1968.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.