Friðrik Pálmar Benediktsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. ágúst 2020 kl. 15:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. ágúst 2020 kl. 15:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Friðrik Pálmar Benediktsson''' frá Þingvöllum, öryrki fæddist þar 31. október 1927 og lést 17. júní 1994.<br> Foreldrar hans voru Benedikt Friðriksso...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Friðrik Pálmar Benediktsson frá Þingvöllum, öryrki fæddist þar 31. október 1927 og lést 17. júní 1994.
Foreldrar hans voru Benedikt Friðriksson frá Gröf, skósmiður, f. 26. febrúar 1887, d. 11. febrúar 1941, og síðari kona hans Guðrún Pálsdóttir frá Laufholti, húsfreyja, f. 21. júlí 1900, d. 24. október 1969.
Börn Benedikts og fyrri konu hans Elsu Dórótheu Guðmundsdóttur:
1. Alfreð Alexander Benediktsson sjómaður í Reykjavík, f. 14. desember 1911 í Vinaminni, bjó síðast á Grettisgötu 37 í Reykjavík, d. 9. nóvember 1946.
2. Ottó Berent Elías Benediktsson bakari, síðast í Reykjavík, f. 2. nóvember 1917 á Þingvöllum, d. 31. maí 1990.
Börn Benedikts og síðari konu hans Guðrúnar Pálsdóttur:
3. Elísabet Ester Benediktsdóttir húsfreyja, verslunarmaður í Reykjavík, f. 29. ágúst 1926 á Þingvöllum.
4. Friðrik Pálmar Benediktsson öryrki, f. 31. október 1927 á Þingvöllum, d. 17. júní 1994.
5. Hörður Benediktsson múrarameistari, f. 29. júlí 1930 í Reykjavík, d. 23. júlí 2009.
6. Sverrir Benediktsson hárskeri, f. 21. júlí 1931 í Reykjavík.
7. Soffía Eygló Benediktsdóttir húsfreyja, iðnverkakona, f. 24. maí 1935 í Reykjavík.

Friðrik Pálmar var með foreldrum sínum í æsku, fluttist með þeim til Reykjavíkur 1928. Hann veiktist 18 ára gamall og var sjúklingur og öryrki síðan. Hann var með foreldrum sínum meðan beggja naut við, síðan með móður sinni meðan hún lifði, en eftir fráfall hennar 1969 tók Ottó hálfbróðir hans hann að sér og annaðist til dánardægurs síns 1990. Þá fór Friðrik Pálmar á Elliheimilið Grund og dvaldi þar til dánardægurs 1994.
Hann lést 1994.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.