Friðfinnur Finnsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júní 2006 kl. 12:02 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júní 2006 kl. 12:02 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Friðfinnur var fæddur á Stóruborg undir Eyjafjöllum 22. desember 1901. Hann var sonur Finnar Sigurfinnssonar og Ólafar Þórðardóttur en þau áttu 13 börn.

Friðfinnur var meðal annars þekktur fyrir að vera kafari. Segir hann að það hafi atvikast þannig að hann hafi séð auglýsingu þar sem auglýst var eftir mönnum til að dýpka höfnina. Nokkru síðar mætir Friðfinnur Kristni Ólafssyni bæjarstjóra og hann hafði sagt að Friðfinnur væri einmitt maðurinn í starfið. Traustyfirlýsing bæjarstjóra hafi því orðið til þess að Friðfinnur ákvað að reyna við köfunina.


Heimildir

  • Blik, ársrit gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Maí 1961