Friðarhöfn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Friðarhöfn

Höfnin Friðarhöfn er vestasti hluti hafnarinnar. Framkvæmdir hófust árið 1943 þegar þurfti að dýpka höfnina í Botni en eiginlegar framkvæmdir hófust ekki fyrr en í lok árs 1954. Þá voru austur- og suðurkantar bryggjunnar settir niður. Nokkurt hlé varð síðan á framkvæmdum í Friðarhöfn og voru norður- og vesturkantar settir niður árið 1960. Bryggjan var síðan endurbyggð árin 1965 og 1966 og enn á ný árin 1997-1999 og frá 2002 og stendur enn, en áætlað er að ljúka við framkvæmdir árið 2006.

Friðarhöfn má gjarnan skipta í tvo hluta:

  • Friðarhafnardokkin
  • Friðarhafnarbryggjan

Viðlegurými og lengd hafnarkanta eru við Friðarhafnarbryggju 70 m austan og 210 m norðan og Friðarhafnardokkin er 480 m að lengd.

Heitið Friðarhöfn er fengið af því hversu kyrrt er þarna innst í höfninni. Einnig töluðu sjómenn á stríðsárunum um að þeir væru komnir í friðarhöfn, þegar þeir lögðu skipum sínum við bryggju í Vestmannaeyjahöfn.

Myndir


Heimildir

  • Helgi Benónýsson. Fjörutíu ár í Eyjum. Reykjavík: Vesturhús hf, 1974.
  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár, II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991.