Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. ágúst 2005 kl. 14:35 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. ágúst 2005 kl. 14:35 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er skóli á framhaldsskólastigi sem tók formlega til starfa haustið 1979 við samruna Vélskólans í Vestmannaeyjum, Iðnskólans í Vestmannaeyjum og framhaldsdeilda Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Í upphafi árs 1997 tók svo Framhaldsskólinn yfir rekstur Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum.

Í upphafi heyrðu elstu bekkir grunnskólans undir Framhaldsskólann, var þá sami skólameistari yfir Framhaldsskólanum og Gagnfræðaskólanum og sumir kennarar kenndu á báðum skólastigunum.

Nemendafjöldi fyrsta árið var 85 nemendur. Þeim fjölgaði fram til ársins 1997 að nemendafjöldi náði 300. Það hefur nokkuð haldist í stað síðan, með sveiflur niður í um 250 nemendur.

Byggingin sem Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er í var byggður fyrir Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum upprunalega, en Þorsteinn Víglundsson stóð fyrir byggingunni á sínum tíma. Áður en að féstyrkur var veittur til byggingarinnar hafði Þorsteinn safnað saman börnum bæjarins sem voru á gagnfræðaskólaaldri og látið þá hjálpa sér við að grafa grunninn fyrir húsið.


Heimildir