Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 10:05 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 10:05 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er skóli á framhaldsskólastigi sem tók formlega til starfa haustið 1979 við samruna Vélskólans í Vestmannaeyjum, Iðnskólans í Vestmannaeyjum og framhaldsdeilda Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Í upphafi árs 1997 tók svo Framhaldsskólinn yfir rekstur Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum.

Í upphafi heyrðu elstu bekkir grunnskólans undir Framhaldsskólann, var þá sami skólameistari yfir Framhaldsskólanum og Gagnfræðaskólanum og sumir kennarar kenndu á báðum skólastigunum.

Nemendafjöldi fyrsta árið var 85 nemendur. Þeim fjölgaði fram til ársins 1997 að nemendafjöldi náði 300. Það hefur nokkuð haldist í stað síðan, með sveiflur niður í um 250 nemendur.

Húsið, sem Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er í, var upphaflega byggt fyrir Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum, en Þorsteinn Víglundsson stóð fyrir byggingunni á sínum tíma. Áður en féstyrkur var veittur til byggingarinnar hafði Þorsteinn safnað saman börnum bæjarins sem voru á gagnfræðaskólaaldri og látið þau hjálpa sér við að grafa grunninn að húsinu.


Heimildir