„Finnbogi Björnsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 9: Lína 9:

Hann kvæntist [[Rósa Eyjólfsdóttir (Norðurgarði)|Rósu Eyjólfsdóttur]] 26. september 1885. Þau voru þá vinnufólk á Eiríksstöðum.

Hann kvæntist [[Rósa Eyjólfsdóttir (Norðurgarði)|Rósu Eyjólfsdóttur]] 26. september 1885. Þau voru þá vinnufólk á Eiríksstöðum.

Þau Rósa fluttust til Eyja 1888 með börnin [[Björn Finnbogason|Björn Þórarinn]], f. 1885 og [[Ágúst Finnbogason|Ágúst Kristján]], f. 1887. Þar bjuggu þau fyrst á [[Uppsalir|Uppsölum]], en fluttu fljótlega að [[Pétursborg]] og þar fæddist [[Stefán Finnbogason|Stefán]] 1889 og [[Finnbogi Finnbogason|Finnbogi]] 1891. Árið eftir flutti fjölskyldan að [[Norðurgarður|Norðurgarði]] og bjó þar síðan. Þar fæddist [[Árni Finnbogason|Árni Sigurjón]] 1893.

Þau Rósa fluttust til Eyja 1888 með börnin [[Björn Finnbogason|Björn Þórarinn]], f. 1885 og [[Ágúst Kristján Finnbogason|Ágúst Kristján]], f. 1887. Þar bjuggu þau fyrst á [[Uppsalir|Uppsölum]], en fluttu fljótlega að [[Pétursborg]] og þar fæddist [[Stefán Finnbogason|Stefán]] 1889 og [[Finnbogi Finnbogason|Finnbogi]] 1891. Árið eftir flutti fjölskyldan að [[Norðurgarður|Norðurgarði]] og bjó þar síðan. Þar fæddist [[Árni Finnbogason|Árni Sigurjón]] 1893.

Finnbogi hóf snemma útveg, sjómennsku og formennsku á áraskipum. Hann var stýrimaður á hákarlajöktum. Hann sótti nokkra báta til Danmerkur, meðal annarra gamla Skaftfelling. Sem bóndi hafði hann einnig fuglatekju.

Á [[Byggðasafn Vestmannaeyja|Byggðasafninu]] eru gamalt úr og fiskikrókar honum merktir.

Á [[Byggðasafn Vestmannaeyja|Byggðasafninu]] eru gamalt úr og fiskikrókar honum merktir.

Útgáfa síðunnar 20. ágúst 2012 kl. 20:49

Finnbogi Björnsson bóndi, útvegsmaður og formaður í Norðurgarði fæddist 1. janúar 1856 í Neðri-Dal u. Eyjafjöllum og lést 6. apríl 1943 í Eyjum.

Ætt og uppruni

Foreldrar Finnboga voru Björn Einarsson bóndi í Neðri-Dal, f. 1828, og kona hans (18. október 1855) Guðríður Hallvarðsdóttir húsfreyja, f. 1826. (Sjá Björn og Guðríði)

Lífsferill

Þau Björn og Guðríður, foreldrar Finnboga, fluttust frá Forsæti í Landeyjum að Sjólyst í Eyjum 1860 og með þeim Guðbjörg 6 ára og Finnbogi 4 ára, en árið 1861 fluttust þau að Kirkjubæ (4. býli) og bjuggu þar meðan Björn lifði.
Finnbogi leitaði til Austurlands 1884 og var vinnumaður á Eiríksstöðum í Seyðisfirði 1885.

Hann kvæntist Rósu Eyjólfsdóttur 26. september 1885. Þau voru þá vinnufólk á Eiríksstöðum.
Þau Rósa fluttust til Eyja 1888 með börnin Björn Þórarinn, f. 1885 og Ágúst Kristján, f. 1887. Þar bjuggu þau fyrst á Uppsölum, en fluttu fljótlega að Pétursborg og þar fæddist Stefán 1889 og Finnbogi 1891. Árið eftir flutti fjölskyldan að Norðurgarði og bjó þar síðan. Þar fæddist Árni Sigurjón 1893.
Finnbogi hóf snemma útveg, sjómennsku og formennsku á áraskipum. Hann var stýrimaður á hákarlajöktum. Hann sótti nokkra báta til Danmerkur, meðal annarra gamla Skaftfelling. Sem bóndi hafði hann einnig fuglatekju.
Á Byggðasafninu eru gamalt úr og fiskikrókar honum merktir.
Rósa Eyjólfsdóttir lézt 6. janúar 1907 í Norðurgarði.
Börn þeirra Rósu:

1. Björn Þórarinn, f. 7. desember 1885,
2. Ágúst Kristján, f. 1. ágúst 1887,
3. Stefán, f. 7. júlí 1889,
4. Finnbogi, f. 11. maí (20. í pr.þj.b.) 1891,
5. Árni Sigurjón, f. 16. desember (5. í pr.þj.bók) 1893.

Finnbogi kvæntist aftur 22. janúar 1910 og nú Margréti Jónsdóttur, f. 29. febrúar 1868.
Börn þeirra voru:

1. Jón Rósinkranz, f. 17. apríl 1908, d. 20. janúar 1932, ókvæntur og barnlaus,
2. Guðni Maríus, f. 10. október 1909.

Þau eignuðust einnig stúlku 3. október 1912, en hún fæddist andvana.

Myndir

Heimildir