Filippus Árnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júní 2012 kl. 15:18 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júní 2012 kl. 15:18 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Filippus

Filippus Árnason fæddist í Vestmannaeyjum 7. júní 1902 og lést 1. júní 1974. Hann var sonur Gíslínu Jónsdóttur og Árna Filippussonar sem bjuggu í Ásgarði og var Filippus gjarnan kenndur við heimili sitt sem Filippus í Ásgarði. Hann bjó að Austurvegi 2. Filippus var kvæntur Jónínu Ólafsdóttur.

Filippus var tengdur Vestmannaeyjahöfn í yfir 40 ár. Hann átti meðal annars bátana Létti og Brimil. Árið 1940 varð Filippus tollvörður og vann við tollgæslu upp frá því, hin síðari ár sem yfirtollþjónn í Vestmannaeyjaumdæmi.

Filippus slasaðist 7. júní 1970 við störf sín og jafnaði sig aldrei að fullu upp frá því. Filippus var félagslyndur maður og hafði mikinn áhuga á þjóðfélagsmálum. Hann var skyldurækinn og átti safn vandaðra bóka.

Sjá nánar: Blik 1978, Merkur brautryðjandi.

Myndir


Heimildir

  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1975. Vestmannaeyjum.