Fagrabrekka

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. júlí 2012 kl. 11:38 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. júlí 2012 kl. 11:38 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Fagrabrekka við Vestmannabraut.
Gömul mynd af Fögrubrekku frá Tóta í Berjanesi.


Húsið Fagrabrekka er við Vestmannabraut 68. Það var reist árið 1915 af Ársæli Sveinssyni útgerðarmanni og stóð um tíma eitt stakt í fallegri brekkunni. Árið 2006 bjó í húsinu Laufey Sigurðardóttir og Gunnar Einarsson ásamt börnum sínum Sigurði Birni Oddgeirssyni, Hjörvari Gunnarssyni og Guðrúnu Lilju Gunnarsdóttur.


Heimildir

  • Vestmannabraut. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.