Erna Tómasdóttir (Efra-Hvoli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Erna Tómasdóttir frá Efra-Hvoli, húsfreyja fæddist 29. desember 1937 í Hvíld við Faxastíg 14 og lést 24. desember 1994.
Foreldrar hennar voru Tómas Elías Sigurðsson frá Efra-Hvoli, vélvirki, f. 30. mars 1914, d. 26. janúar 1994, og kona hans Elísabet Hrefna Eyjólfsdóttir frá Presthúsum, húsfreyja, f. 8. júní 1913, d. 13. júlí 1984.

Börn Elísabetar og Tómasar:
1. Erna Tómasdóttir húsfreyja, f. 29. desember 1937 í Hvíld. Maður hennar er Guðjón Stefánsson.
2. Hrefna Guðbjörg Tómasdóttir húsfreyja, f. 28. janúar 1942 á Efra-Hvoli. Maður hennar er Kristinn Viðar Pálsson.
3. Sigurjón Arnar Tómasson bifvélavirkjameistari, f. 21. febrúar 1946 á Efra-Hvoli, d. 10. ágúst 2005. Kona hans var María Ragnhildur Ragnarsdóttir.

Erna var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Guðjón giftu sig 1958, eignuðust sex börn. Þau bjuggu við Hólagötu 48.
Erna lést 1994 og Guðjón 2022.

I. Maður Ernu, (6. apríl 1958), var Guðjón Stefánsson frá Hólatungu, húsasmíðameistari, f. 7. janúar 1936, d. 27. júlí 2022.
Börn þeirra:
1. Tómas Hrafn Guðjónsson verslunarstjóri, f. 2. desember 1957 á Efra-Hvoli. Fyrrum kona hans Harpa Gísladóttir. Unnusta hans Anna Jóna Guðmundsdóttir.
2. Rósa Elísabet Guðjónsdóttir stuðningsfulltrúi, f. 26. júlí 1959. Maður hennar er Guðjón Hjörleifsson.
3. Guðjón Örn Guðjónsson vélvirki, f. 28. ágúst 1961. Kona hans Jóhanna Kristín Gunnlaugsdóttir.
4. Sóley Guðbjörg Guðjónsdóttir starfsmaður á hóteli, f. 20. nóvember 1963.
5. Bylgja Dögg Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 29. mars 1967. Maður hennar Óskar Þór Kristjánsson.
6. Stefán Orri Guðjónsson vélvirki, f. 5. júní 1969. Barnsmóðir Rósa Ólafsdóttir. Kona hans Bára Ingólfsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.