Erna Sævaldsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Erna Sævaldsdóttir húsfreyja fæddist 8. apríl 1967 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Sævald Pálsson frá Þingholti, skipstjóri, f. 27. desember 1936, d. 26. ágúst 2023, og kona hans Svava Guðríður Friðgeirsdóttir frá Efra-Hvoli, húsfreyja, f. 4. júlí 1940, d. 9. janúar 2017.

Börn Svövu og Sævalds:
1. Elías Geir Sævaldsson sjómaður, f. 30. janúar 1958. Kona hans er Anna Gerða Bjarnadóttir.
2. Sigurgeir Sævaldsson sjómaður, f. 30. júlí 1959. Kona hans er Lóa Hrund Sigurbjörnsdóttir.
3. Grétar Þór Sævaldsson sjómaður, f. 24. júlí 1960. Kona hans er Kristný S. Tryggvadóttir.
4. Ásdís Sævaldsdóttir húsfreyja, fjármálastjóri, f. 5. ágúst 1962. Maður hennar er Hallgrímur Tryggvason.
5. Erna Sævaldsdóttir húsfreyja, f. 8. apríl 1967. Maður hennar er Gylfi Sigurjónsson.

Erna var með foreldrum sínum.
Hún lauk prófum í verslunardeild Framhaldsskólans í Eyjum.
Erna vann við fiskiðnað og í Skútanum.
Þau Gylfi giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau búa við Hrauntún.

I. Maður Ernu er Gylfi Sigurjónsson, f. 19. október 1966.
Börn þeirra:
1. Bergur Páll Gylfason, f. 7. ágúst 1988. Kona hans Sara Sjöfn Grettisdóttir.
2. Andri Þór Gylfason, f. 15. ágúst 1991. Fyrrum sambúðarkona hans Birta Baldursdóttir.
3. Daníel Freyr Gylfason, f. 2. apríl 1998.
4. Sævald Gylfason, f. 29. júlí 2002.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.