Erlendur Magnússon (Bjarmalandi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. nóvember 2019 kl. 17:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. nóvember 2019 kl. 17:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Erlendur Magnússon (Bjarmalandi)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Erlendur Magnússon frá Bjarmalandi, útgerðarmaður, sjómaður, verkamaður, leigubifreiðastjóri í Reykjavík fæddist 13. mars 1923 á Bjarmalandi og lést 9. október 2003 á Hrafnistu í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Magnús Magnússon frá Geitagili í Örlygshöfn, skipasmiður í Dvergasteini og á Bjarmalandi, f. 6. október 1882, d. 22. október 1961 og k.h. Oddný Erlendsdóttir frá Skíðbakka í A-Landeyjum, húsfreyja, f. 11. október 1883, d. 9. ágúst 1969.
Börn Oddnýjar og Magnúsar:
1. Hulda Magnúsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 29. júní 1913 í Ólafshúsum, d. 6. nóvember 1998.
2. Marta Sonja Magnúsdóttir, húsfreyja, saumakona, gangavörður, f. 19. nóvember 1914 á Ingólfshvoli, d. 13. október 2010.
3. Magnús Adolf Magnússon, bifvélavirki, býr í Kópavogi, f. 20. júlí 1916 í Dvergasteini, d. 25. desember 1996.
4. Þórdís Magnúsdóttir vinnukona í Reykjavík, f. 15. september 1917 í Dvergasteini, d. 23. apríl 1939.
5. Jórunn Lilja Magnúsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 5. desember 1919 í Dvergasteini, d. 14. febr. 2008.
6. Erlendína Guðrún Magnúsdóttir, f. 18. júní 1921 í Dvergasteini, d. 21. september 1922.
7. Erlendur Magnússon verkamaður, sjómaður, útgerðarmaður í Reykjavík, f. 13. mars 1923 á Bjarmalandi, d. 9. október 2003.
8. Guðbjört Magnúsdóttir húsfreyja, gangavörður í Reykjavík, f. 31. maí 1924 á Bjarmalandi, d. 27. júlí 2019.
9. Elísabet Fjóla Magnúsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 24. nóvember 1925 á Bjarmalandi, d. 28. ágúst 2004. Hún varð kjörbarn Helgu Eggertsdóttur húsfreyju og Kristófers Péturs Eggertssonar skipstjóra á Akranesi.
10. Fanney Magnúsdóttir húsfreyja, verkakona í Reykjavík, f. 3. mars 1928 á Bjarmalandi, d. 4. október 2013.

Erlendur var með foreldrum sínum í æsku, var með þeim á Bjarmalandi 1940 og mun hafa fylgt þeim til Reykjavíkur 1942. Hann var bifreiðastjóri að Laugavegi 86a hjá foreldrum sínum 1942-1949 og aftur 1956-1964, bjó hjá Magnúsi bróður sínum á Kársnesbraut 10 í Kópavogi 1949.
Hann bjó víða, á Óðinsgötu, á Nesvegi 33, á Langholtsvegi 23, í Hátúni 4, á Snorrabraut 35, í Stigahlíð 36, á Lindargötu 26, í Hlunnavogi 10, á Bárugötu 2.
Þá bjó hann hjá Fanneyju systur sinni í Eskihlíð 16 1980, bjó hjá henni á Staðarbakka 22 1980, á Rauðarárstíg 1 1982.
Erlendur bjó síðar á Austurbrún 4, en síðustu mánuði sína á Hrafnistu.
Hann lést 2003, ókvæntur og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.