Erlendur Jónsson (Ólafshúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júní 2015 kl. 11:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júní 2015 kl. 11:21 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Erlendur Jónsson (Elli í Ólafshúsum).

Erlendur Jónsson fæddist í Vestmannaeyjum 9. október 1908 og lést 23. febrúar 1984. Hann var sonur Jóns Bergs Jónssonar í Ólafshúsum og síðari konu hans Jórunnar Erlendsdóttur.

Erlendur var kvæntur Ólafíu Bjarnadóttur frá Túni í Vestmannaeyjum. Þau eignuðust eina dóttur, Bjarneyju Sigurlínu.

Frekari umfjöllun

Erlendur Oddgeir Jónsson vélstjóri og bóndi í Ólafshúsum, fæddist 9. október 1908 og lést 23. febrúar 1984.
Foreldrar hans voru Jón Bergur Jónsson, f. 10. ágúst 1864 að Hörgslandi á Síðu, d. 16. apríl 1952 og síðari kona hans Jórunn Erlendsdóttir húsfreyja, frá Skíðbakka í A-Landeyjum, f. 13. júní 1876, d. 28. desember 1963.

Kona Erlendar var Ólafía Bjarnadóttir húsfreyja, f. 3. desember 1909, d. 1. júní 1994.

Barn Erlendar og Ólafíu:
Bjarney, f. 20. febrúar 1932, gift Gísla Grímssyni frá Haukabergi Gíslasonar og konu hans Guðbjargar Magnúsdóttur húsfreyju.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Erlendur er maður í hærra lagi, sterklega vaxinn, þrekinn um herðar, en niðurmjór, enda er maðurinn mjög vel fær, bæði að afli og snarleika. Hann er bæði bóndi í Ólafshúsum og stundar þess utan sjóróðra við góðan dóm almennings og samstarfsmanna sinna. Hann er glaður og reifur í sínum hóp, en dulur og fáskiptinn í margmenni. Hann er mjög góður heim að sækja, ræðinn, veitull og skemmtilegur.
Hann hefir stundað nokkuð lundaveiðar í Álsey og víðar og verið mjög framarlega við bjargferðir úteyjanna, við fýla- og eggjatekju, harðduglegur göngumaður og traustur við „sig“ öll og lausagöngur. Já, – Erlendur er hraustur maður.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók - Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.



Myndir