Erlendur Ingjaldsson (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. nóvember 2013 kl. 16:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. nóvember 2013 kl. 16:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Erlendur Ingjaldsson''' sjávarbóndi á Kirkjubæ fæddist 26. febrúar 1828 í Berjanesi u. Eyjafjöllum og drukknaði 12. janúar 1887.<br> Foreldrar hans voru Ingjaldur Erlend...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Erlendur Ingjaldsson sjávarbóndi á Kirkjubæ fæddist 26. febrúar 1828 í Berjanesi u. Eyjafjöllum og drukknaði 12. janúar 1887.
Foreldrar hans voru Ingjaldur Erlendsson vinnumaður úr Steinasókn og Halldóra Guðmundsdóttir vinnukona í Berjanesi.
Hann var niðursetningur í Berjaneskoti u. Eyjafjöllum 1835, niðursetningur í Syðstu-Mörk þar 1840, fermdist 1841 frá presthjónunum í Holti, sr. Markúsi Jónssyni og Krístínu Þorgrímsdóttur húsfreyju, var 18 ára vinnumaður í Holti þar 1845.
Hann fluttist að Ottahúsi 1846.
Erlendur var 26 ára vinnumaður á Gjábakka 1850 og þar var Margrét Jónsdóttir vinnukona og sennilega með barni hans. Hann var sjávarbóndi á Kirkjubæ 1855. Við manntal 1860 var hann þar með Ingigerði konu sinni og börnunum Jóhönnu 8 ára og Elínu tveggja ára. Vinnumaður var hann svo á Löndum 1870, fluttist að Ystaskála u. Eyjafjöllum og var þar vinnumaður 1880.
Erlendur drukknaði 1887 í sjóslysi við Bjarnarey.

I. Barnsmóðir Erlendar var Margrét Jónsdóttir á Gjábakka, síðar húsfreyja í Túni, f. 6. apríl 1825, d. 25. desember 1865.
Barn þeirra var
1. Guðrún Erlendsdóttir vinnukona, mormóni, síðar í Vesturheimi, f. 1850.

II. Kona Erlendar var Ingigerður Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 1830, d. 26. apríl 1897.
Börn þeirra hér
1. Jóhanna Erlendsdóttir, f. 1852, d. 20. mars 1883.
2. Elín Erlendsdóttir, f. 11. janúar 1859, d. 29. nóvember 1922.


Heimildir