Erla Kristinsdóttir (Garðabæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. maí 2020 kl. 10:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. maí 2020 kl. 10:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Erla Kristinsdóttir''' húsfreyja í Hafnarfirði og Garðabæ fæddist 25. desember 1950 í Vestra-Stakkagerði, skírð á Kópaskeri.<br> Foreldrar henn...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Erla Kristinsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði og Garðabæ fæddist 25. desember 1950 í Vestra-Stakkagerði, skírð á Kópaskeri.
Foreldrar hennar voru Baldur Sigurlásson sjómaður, f. 26. júlí 1926, d. 28. júlí 1980, og barnsmóðir hans Sigríður Einarsdóttir, f. 5. febrúar 1922, d. 9. júní 1989.
Kjörforeldrar Erlu voru Kristinn Nikulás Ágústsson frá Eskifirði, vélstjóri á Kópaskeri, síðast í Hafnarfirði, f. 21. janúar 1915, d. 12. nóvember 1988 og kona hans Kristín Ágústa Stefánsdóttir frá Þórshöfn, húsfreyja á Kópaskeri, síðar í Hafnarfirði, f. 22. febrúar 1921, d. 28. júlí 2017.

Erla var með kjörforeldrum sínum á Kópaskeri og Raufarhöfn, fluttist síðan til Hafnarfjarðar, býr nú í Garðabæ.
Hún hefur unnið hjá lyfjafyrirtæki í Reykjavík.
Hún eignaðist barn með Gunnari Sigurvin 1969.
Þau Halldór giftu sig 1975, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Hafnarfirði og Garðabæ.
Halldór lést 2018.

I. Barnsfaðir Erlu er Gunnar Sigurvin Þorgilsson, f. 9. september 1947.
Barn þeirra:
1. Kristín Ágústa Gunnarsdóttir húsfreyja, vinnur hjá lyfjafyrirtæki, f. 12. mars 1969. Maður hennar Guðjón Víðisson.

II. Maður Erlu, (28. desember 1975), var Halldór Svavarsson sjómaður, bifreiðastjóri, f. 6. apríl 1948, d. 1. desember 2018.
Börn þeirra:
1. Kristinn Rúnar Halldórsson rafvirki á Selfosssi, f. 8. nóvember 1973. Kona hans María Árnadóttir.
2. Svavar Örn Halldórsson pípulagningameistari í Hafnarfirði, f. 17. janúar 1976. Fyrrum sambýliskona Sigurborg Sóley Snorradóttir.
3. Halldór Heiðar Halldórsson húsasmiður, fisksali í Kópavogi, f. 26. apríl 1982. Kona hans Agnes Barkardóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Erla.
  • Íslendingabók.is.
  • Morgunblaðið 23. ágúst 2017. Minning Kristínar Stefánsdóttur.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.