Emil Sigurðsson (vélstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. september 2022 kl. 11:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. september 2022 kl. 11:16 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Karl Emil Sigurðsson.

Karl Emil Sigurðsson frá Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði, sjómaður, vélstjóri fæddist þar 8. janúar 1924 og lést 18. nóvember 2010 á Elli- og á Dvalarheimilinu Grund í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Sigurður Karlsson frá Garðsá í Fáskrúðsfirði, bóndi, útvegsbóndi, síðar í Fagurhól, f. 29. mars 1904, d. 12. ágúst 1972, og kona hans Kristín Sigurðardóttir húsfreyja, síðar í Fagurhól, f. 6. október 1906, d. 27. maí 1981.

Börn Kristínar og Sigurðar:
1. María Sigþrúður Sigurðardóttir húsfreyja, verslunamaður, f. 14. september 1922, d. 4. maí 2005. Maður hennar Magnús Benjamínsson.
2. Karl Emil Sigurðsson vélstjóri, f. 8. janúar 1924, d. 18. nóvember 2010. Kona hans Lilja Finnbogadóttir, látin. Kona hans Helga Þorkelsdóttir.
3. Jórunn Þórunn Sigurðardóttir, f. 27. október 1925, d. 3. ágúst 1967. Maður hennar Ólafur Erlendsson.
4. Óskar Sigurðsson, f. 19. maí 1927.
5. Rafn Sigurðsson sjómaður, leigubifreiðastjóri, f. 29. mars 1929, d. 27. ágúst 1988. Fyrrum kona hans Lene Ebbesen. Fyrrum kona hans Fanney Sigurjónsdóttir.
6. Jón Sigurðsson, f. 1. febrúar 1931, d. 4. apríl 1931.
7. Erna Guðmundína Sigurðardóttir, f. 16. maí 1932, d. 6. apríl 2022. Fyrri maður hennar var Björgvin Óskarsson, látinn. Síðari maður hennar Kristinn Jónsson.
8. Ásta Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1. ágúst 1933, d. 9. mars 2022. Barnsfaðir hennar Ragnar Runólfsson. Maður hennar Garðar Ásbjörnsson.
9. Oddný Fjóla Sigurðardóttir, f. 13. október 1936. Maður hennar Bernharð Ingimundarson.
10. Valgerður Jóna Sigurðardóttir, f. 15. desember 1942. Maður hennar Rúnar Eiríkur Siggeirsson.
Barnsmóðir Sigurðar var Marta Sveinbjörnsdóttir frá Eyjólfsstöðum í Fossárdal, Berufirði, f. 11. júlí 1908, d. 20. janúar 1999.
Barn þeirra:
11. Ágúst Heiðar Sigurðsson, f. 23. október 1938, d. 24. maí 2008. Kona hans Sigrún Júlíusdóttir.

Emil var með foreldrum sínum í æsku.
Hann öðlaðist vélstjórnarréttindi í Neskaupstað.
Emil reri ungur með föður sínum, reri síðan frá heimahögum og suður með sjó.
Hann flutti til Eyja um 1950, var vélstjóri á ýmsum bátum, en lengst á Sigurfara VE 38.
Í Gosinu 1973 fluttu þau Helga til Grindavíkur. Emil hóf störf hjá Fiskimjöl og lýsi og vann þar til 1991, en þá flutti hann til Reykjavíkur og vann hjá Olíufélaginu Esso til 2002.
Emil flutti í þjónustuíbúð aldraðra á Vesturgötu 7 árið 2004, dvaldi síðustu mánuði sína á Elli- og Dvalarheimilinu Grund í Reykjavík.
Hann lést 2010.
Þau Lilja giftu sig 1953, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Faxastíg 43.
Lilja lést 1959.
Þau Helga giftu sig 1962, eignuðust ekki börn, en hún átti áður eitt barn. Þau bjuggu á Faxastíg 43, fluttu til Grindavíkur við Gos 1973.
Helga lést 1980.

I. Kona Emils, (23. maí 1953), var Lilja Finnbogadóttir frá Vallartúni, húsfreyja, forstöðukona, f. 15. febrúar 1920, d. 1. maí 1959.
Börn þeirra:
1. Gunnhildur Emilsdóttir, f. 1. nóvember 1952. Maður hennar Jakob Fenger, látinn.
2. Ásdís Lilja Emilsdóttir, f. 5. ágúst 1956. Maður hennar Kristján Ingi Einarsson.

II. Síðari kona Emils, (2. júní 1962), var Helga Þorkelsdóttir frá Sandprýði, húsfreyja, f. 11. nóvember 1913, d. 22. september 1980.
Þau voru barnlaus, en Helga átti barn áður:
3. Pétur Ragnar Antonsson, f. 26. ágúst 1934. Kona hans Sigrún Jónsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 25. nóvember 2010. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.