Emerentíana Sæmundsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júní 2015 kl. 10:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júní 2015 kl. 10:40 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Emerentíana Sæmundsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum fæddist 1763 á Vilborgarstöðum og lést 11. júní 1836.
Foreldrar hennar voru Sæmundur Pálsson bóndi í Dölum, f. 1726, d. 19. febrúar 1802, og kona hans Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 1726, d. 30. september 1787.

Emerentíana var húsfreyja í Dölum 1788, á Vilborgarstöðum 1792, 1801 og 1808, ekkja og húskona þar 1835.
Emerentíana var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (18. nóvember 1787), var Jón Nikulásson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 1753, d. 19. mars 1808. Þau misstu öll börn sín úr ginklofa.
Börn þeirra hér:
1. Guðrún Jónsdóttir, f. 12. október 1788 í Dölum, d. 19. október 1788 úr ginklofa.
2. Nikulás Jónsson, f. 30. september 1790, d. 9. október 1790 úr ginklofa.
3. Margrét Jónsdóttir, f. 15. júlí 1792 á Vilborgarstöðum, d. 29. júlí 1792 úr ginklofa.
4. Þorbjörg Jónsdóttir, f. 5. júní 1795, d. 10. júní úr ginklofa.
5. Magnús Jónsson, f. 16. mars 1798, d. 25. mars 1798 úr ginklofa.

II. Síðari maður Emerentíönu, (17. nóvember 1808), var Þorsteinn Guðmundsson bóndi á Vilborgarstöðum 1816, f. 1778, d. 5. mars 1834.
Þau voru barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.