Elías Baldvinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. janúar 2022 kl. 09:31 eftir Gudmundurj85 (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. janúar 2022 kl. 09:31 eftir Gudmundurj85 (spjall | framlög) (Verndaði „Elías Baldvinsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Elías Baldvinsson.

Elías Baldvinsson fæddist að Háarima í Þykkvabæ 1. júní 1938. Hann lést 16. september 2003. Foreldrar hans voru Þórunn Elíasdóttir og Baldvin Skæringsson. Systkini Elíasar eru: Kristín Elísa sem er látin, Baldur Þór, Kristinn Skæringur, Ragnar Þór, Birgir Þór, Hrefna, Baldvin Gústaf og Hörður.

Elías kvæntist 6. júní 1959 eftirlifandi konu sinni, Höllu Guðmundsdóttur sem er fædd 1939. Börn Höllu og Elíasar eru: Þórunn Lind, f. 13.6. 1957, sjómaður í Vestmannaeyjum, Unnur Lilja, f. 31.1. 1959, skrifstofumaður í Búðardal, Kristín Elfa, f. 25.6. 1960, skrifstofumaður í Vestmannaeyjum, Guðmundur, f. 13.3. 1962, verkfræðingur í Vestmannaeyjum, Sigrún, f. 1.3. 1964, markaðsfulltrúi hjá RÚV, Eygló, Elísa, f. 3.8. 1971, bókavörður við Barnaskóla Vestmannaeyja og Baldvin, f. 1.2. 1977, deildarstjóri hjá SS.

Elías í Magnabúð.

Árið 1959 lauk Elías sveinsprófi í bifvélavirkjun sem hann lærði hjá Hreggviði Jónssyni í Vestmannaeyjum. Þá sótti hann skipstjórnarnámskeið í Eyjum einn vetur hjá Guðjóni Pedersen.

Að námi loknu starfaði Elías m.a. við iðn sína hjá Vélsmiðjunni Völundi auk þess sem hann starfrækti sitt eigið verkstæði. Þá stundaði hann sjómennsku á árunum 1959-62, lengst af hjá Kristni Pálssyni, á Bergi VE-44 sem sökk út af Öndverðarnesi 1962 en mannbjörg varð.

Elías var bifreiðaeftirlitsmaður í Vestmannaeyjum 1963 og vann við það til 1973. Hann gekk í Slökkvilið Vestmannaeyja 1962, varð varaslökkviliðsstjóri 1973 og slökkviliðsstjóri 1984. Hann tók við stjórn Áhaldahússins í Vestmannaeyjum 1973 og starfaði við það allt til dánardægurs. Einnig gegndi hann fjölmörgum trúnaðarstörfum við hinar ýmsu nefndir og ráð á vegum Vestmannaeyjabæjar.

Elías var einn af stofnfélögum Kiwanisklúbbsins Helgafells í Vestmannaeyjum. Hann sinnti ýmsum trúnaðarstörfum fyrir klúbbinn, var m.a. forseti hans 1990-91.


Heimildir

  • Gagnasafn Morgunblaðsins: Minningargreinar um Elías Baldvinsson. 2003.