Elsa Dóróthea Ólafía Guðmundsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. ágúst 2020 kl. 09:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. ágúst 2020 kl. 09:44 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Elsa Dóróthea Ólafía Guðmundsdóttir frá Seyðisfirði, bústýra í Vinaminni fæddist 28. apríl 1889 á Seyðisfirði og lést 4. desember 1918.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Einarsson frá Miðhúsum, sjómaður og útgerðarmaður á Seyðisfirði, f. 12. apríl 1856, d. 2. ágúst 1936, og kona hans Oddný Ólafsdóttir frá London, f. 6. ágúst 1859 í Steinasókn og lést 23. maí 1926.

Systir Elsu var
Oktavía Guðný Guðmundsdóttir húsfreyja í Helli f. 5. október 1893, d. 22. október 1980.

Elsa var með foreldrum sínum á Kvennabrekku á Seyðisfirði 1890, í Guðmundarhúsi þar 1901.
Hún fluttist frá Seyðisfirði til Eyja 1910 og var þá bústýra í Vinaminni hjá Benedikt Friðrikssyni skósmíðameistara. Þau giftu sig 1911 og bjuggu í Vinaminni til 1917, en voru komin á Þingvelli síðla árs 1917.
Elsa ól Alfreð Alexander í Vinaminni 1911 og Ottó Berent Elías á Þingvöllum 1917. Hún lést 1918.

Maður Elsu, (4. nóvember 1911), var Benedikt Friðriksson skósmíðameistari, f. 26. febrúar 1887, d. 11. febrúar 1941.
Börn þeirra voru:
1. Alfreð Alexander Benediktsson sjómaður í Reykjavík, f. 14. desember 1911 í Vinaminni, d. 9. nóvember 1946.
2. Ottó Berent Elías Benediktsson bakari, síðast í Reykjavík, f. 2. nóvember 1917 á Þingvöllum, d. 31. maí 1990.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.