Elliði Vignisson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. september 2014 kl. 21:48 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. september 2014 kl. 21:48 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Elliði Vignisson bæjarstjóri

Elliði Vignisson er fæddur 28. apríl 1969. Eiginkona hans er Bertha Johansen kennari í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum og eiga þau tvö börn, Nökkva Dan og Bjarteyju Bríeti.

Elliði er sálfræðingur að mennt og hefur m.a starfað sem kennari við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. Elliði var oddviti Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2006, 2010 og 2014. Hann var kjörinn bæjarstjóri á bæjarstjórnarfundi í Vestmannaeyjum 13. júní 2006 og hefur verið það frá þeim tíma.