„Elliðaey“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
(mynd)
The content of the new revision is missing or corrupted.
Lína 1: Lína 1:
'''Elliðaey''' er þriðja stærsta eyja [[Vestmannaeyjar|Vestmannaeyja]], (stundum nefnd ''Ellirey''), og er 0,45km² að [[flatarmál|flatarmáli]]. Eyjan er víðast sæbrött, lægri að austanverðu þar sem greitt er uppgöngu um Austurflá þar sem reipi hefur verið komið fyrir. Elliðaey er mjög grösug og þar var heyjað fyrrum og einnig hagaganga fyrir fé og jafnvel nautgripi. Gífurlega mikið varp er þar og fuglatekja. Eyjan er hæst að norðan, það er Hábarð (114 metrar yfir sjávarmáli). Á eyjunni eru tveir gjallgígar, Litli Bunki og Stóri Bunki. Talið er að eyjan hafi myndast í eldgosi sem hefur verið töluvert stærra en [[Surtsey]]jargosið, fyrir um 5-6 þúsund árum.


Graslendi þekur alla eyjuna og hefur gríðarlegur fjöldi lunda grafið sér holur þar. Í eyjunni er fé beitt og lundaveiði er stunduð á sumrin.
Á eyjunni er stórt veiðihús í eigu Elliðaeyjarfélagsins, sem að stundar þar [[Lundi|Lundaveiði]] á sumrin og eggjatöku á vorin, en húsið er gjarnan leigt út til annarra félagsstarfa. Húsið var byggt árið [[1953]] við rætur Hábarðs og hefur verið endurbættur mikið síðan.
Deildar meiningar eru um nafn eyjunnar en Elliðaeyjarnafnið dregur hún sennilega af skipi því að hún er lík stafnháu skipi. En sumir segja að nafnið ''Ellirey'' sé vegna þess að eyjan taki nafn sitt af tveimur hellum H-ellirey, en önnur eyja í Vestmannaeyjum dregur nafn sitt af hellum, [[Hellisey]].
Elliðaey er í náttúruminjaskrá því þar eru mjög miklar og sérstæðar sjófuglabyggðir.
== Höskuldur í Elliðaey ==
Ýmsar sögur eru til úr Elliðaey, en ein þeirra hljómar á þá leið:
:''Einhvern tíma fyrir löngu var margt fólk við slátt í Elliðaey. Þar á meðal var vinnukona sem hét Guðrún Höskuldsdóttir. Á almæli var að þessi kona var ekki ein saman og hún hafði orðið léttari í Elliðaey um sláttinn. Hún bar barnið út og faldi það í helli einum í lundabyggðinni skammt austur af Nautaréttinni. Þessi útburður var nefndur Höskuldur eftir föður móðurinnar og hellirinn síðan [[Höskuldarhellir]] því að útburðurinn hafðist þar við.''
:''Þessi útburður gerði lundamönnum og sláttumönnum ónæði með væli sínu á nóttum, einkum þó þegar gekk á með illvirði. Þá heyrðist útburðarvælið frá hellinum langt að.''
:::Sögn Gísla Lárussonar í Stakkagerði
== Heimildir ==
* Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum.
* ''Aðalskipulag Vestmannaeyja'', 2004-2014, 4. tillaga (22/10/2004)
[[Flokkur:Eyjur]]
[[Flokkur:Elliðaey]]
[[Flokkur:Þjóðsögur]]

Útgáfa síðunnar 8. júní 2005 kl. 16:37