Elísabet Hrefna Eyjólfsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. mars 2018 kl. 20:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. mars 2018 kl. 20:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Elísabet Hrefna Eyjólfsdóttir''' húsfreyja á Efra-Hvoli, Brekastíg 7 C fæddist 8. júní 1913 í Presthúsum og lést 13. júlí 1984. Foreldrar hennar v...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Elísabet Hrefna Eyjólfsdóttir húsfreyja á Efra-Hvoli, Brekastíg 7 C fæddist 8. júní 1913 í Presthúsum og lést 13. júlí 1984. Foreldrar hennar voru Eyjólfur Ólafsson Ásberg bakari og kaupmaður í Keflavík, f. 19. júlí 1891, d. 27. nóvember 1954, og barnsmóðir hans Guðbjörg Arnbjörnsdóttir, f. 22. desember 1891 í Jómsborg, d. 18. maí 1944.

Móðursystkini Elísabetar Hrefnu voru:
1. Bergmundur Arnbjörnsson í Nýborg, f. 17. október 1883 í Helgahjalli, d. 28. nóvember 1952.
2. Þorbjörn Arnbjörnsson á Reynifelli, f. 8. október 1886 í Helgahjalli, d. 10. nóvember 1965.
3. Ágústa Arnbjörnsdóttir húsfreyju í Hvíld við Faxastíg, f. 11. ágúst 1899 á Oddsstöðum, d. 24. maí 1989.

Elísabet Hrefna ólst upp hjá móðurforeldrum sínum Arnbirni Ögmundssyni útvegsbónda og landverkamanni og konu hans Elísabetu Bergsdóttur húsfreyju og Guðbjörgu móður sinni.
Þau Tómas giftu sig 1941, bjuggu á Efra-Hvoli, eignuðust þrjú börn.
Elínborg Hrefna lést 1984 og Tómas 1994.

I. Maður Elísabetar Hrefnu, (13. september 1941), var Tómas Elías Sigurðsson vélvirki, f. 30. mars 1914, d. 26. janúar 1994.
Börn þeirra:
1. Erna Tómasdóttir, f. 29. desember 1937 á Faxastíg 14, Hvíld.
2. Hrefna Guðbjörg Tómasdóttir, f. 28. janúar 1942 á Efra-Hvoli.
3. Sigurjón Arnar Tómasson, f. 21. febrúar 1946 á Efra-Hvoli.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.