Elínborg Sigurðardóttir (Skuld)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. ágúst 2019 kl. 17:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. ágúst 2019 kl. 17:54 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Elínborg Sigurðardóttir frá Skuld, húsfreyja fæddist 25. ágúst 1913 og lést 5. nóvember 1993.
Foreldrar hennar voru Sigurður Pétur Oddsson útgerðarmaður í Skuld og k.h. Ingunn Jónasdóttir húsfreyja.

Faðir Sigurðar voru Oddur bóndi á Rauðafelli u. Eyjafjöllum, Krossi í Landeyjum og Heiði á Rangárvöllum, f. 7. sept. 1842 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 16. nóv. 1922 á Heiði, Péturs bóndi á Hrútafelli Oddssonar og konu Péturs, Valgerðar húsfreyja, f. 7. jan. 1809, d. 29. apríl 1876, Hróbjarts bónda í Berjanesi u. Eyjafjöllum, f. 1769, d. 27. júní 1824, Björnssonar. Móðir Sigurðar Péturs og f.k.h. Odds var Sigríður húsfreyja á Heiði á Rangárvöllum, f. 5. júlí 1840, d. 27. febr. 1885, Árna bónda í Skálakoti, f. 9. ágúst 1798, d. 5. ágúst 1864, Sveinssonar og konu Árna bónda, Guðfinnu húsfreyju, f. 3. okt. 1806, d. 8. maí 1882, Sveins bónda á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, f. 1761, d. 17. okt. 1845, Alexanderssonar.

Faðir Ingunnar í Skuld voru Jónas bóndi á Helluvaði á Rangárvöllum, f. 20. sept. 1862 í Eystrihól, d. 15. júní 1924, Ingvars bónda á Valstrýtu í Fljótshlíð, Ártúnum og síðar á Eystrihóli í Landeyjum, formanns við Landeyjasand, f. 28. ágúst 1824 á Galtalæk á Landi, d. 12. apríl 1875, drukknaði í lendingu á Skúmsstaðafjöru, Runólfssonar og konu Ingvars, Kristínar húsfreyju, f. 8. júlí 1822, d. 22. des. 1914, Sigurðar bónda í Ártúnum, f. 1791, d. 28. maí 1866 í Ártúnum, Þorsteinssonar.
Móðir Ingunnar og kona (6. jan. 1882) Jónasar var Elín húsfreyja, f. 10. nóvember 1856, d. 12. apríl 1911, Jóns bónda á Oddsstöðum í Eyjum, f. 1808, d. 6. júní 1866, Þorgeirssonar og konu Jóns, Margrétar húsfreyju, f. 16. janúar 1832, d. 15. febrúar 1919, Halldórs bónda í Steinum u. Eyjafjöllum, Eiríkssonar.

ctr


Skuldarfjölskyldan.
Mynd og skýringar úr Bliki 1961.

Standandi frá vinstri:
1. Stefanía, f. 2. júní 1921. Gift Guðna Kristjánssyni, bakarameistara. Búsett á Akranesi. Börn: Jónína, Sigurður Pétur og Kristján.
2. Ólafur, f. 14. okt. 1915. Giftur Ástu Kristjánsdóttur Bjartmars. Búsett í Vestmannaeyjum, útgerðarmaður og skipstjóri þar. Börn: Ingibjörg, Kristján og Edda Guðríður.
3. Sigurbjörg, f. 2 febr. 1917. Tvígift. Fyrri m. Skafti Þórarinsson. Barn: Kolbrún Skafta. Seinni m: Guðmundur Gíslason. Búsett í Reykjavík. Börn: Jóhannes, Stefanía og Erna Björk.
4. Oddur, f 25. maí 1911. Giftur Lovísu Magnúsdóttur. Búsett í Vestm., skipstjóri þar. Börn: Magnús, Sigurður Pétur og Valur.
5. Þórunn Lovísa, f. 30. ágúst 1908. Gift Guðna Grímssyni, útgerðarmanni og skipatjóra í Vestm. Börn: Kristín og Sigurður.
6. Jónas, f. 29. marz 1907, húsvörður Gagnfræðaskólans. Giftur Guðrúnu Ingvarsdóttir. Börn: Ingunn, Guðrún, Sjöfn, Sigurgeir og Sigurjón Ingvars.
7. Elínborg, f. 25. ágúst 1913. Gift Guðmundi Geir Ólafssyni, verzlunarmanni. Búsett á Selfossi Börn: Erla, Ólafur og Ingunn.
8. Jónheiður Árný, f. 16. jan. 1919. Gift Jóni Sigurðssyni, verzlunarmanni. Búsett í Reykjavik. Börn: Guðrún Ólafía og Sigrún Inga.
Sitjandi frá vinstri:
1. Sigríður Inga, f. 14. apríl 1925. Gift Ingólfi Theódórssyni, netagerðarmanni og útgerðarmanni í Vestmannaeyjum. Börn: Sigurður Ingi, Hugrún og óskírt meybarn.
2. Ingunn Jónasdóttir, f. 23. nóv. 1883 á Helluvaði á Rangárvöllum, d. 28. apríl 1960.
3. Jónas Ragnar, prentari, f. 24. febr. 1928. Ógiftur.
4. Sigurður Pétur Oddsson, f. 28. marz 1880 að Krossi í A.-Landeyjum, d. 10. maí 1945.
5. Jóhanna Júlía, f. 4 marz 1923. Gift Guðmundi Jónssyni, bakarameistara. Búsett í Rvík. Börn: Reynir, Ingunn, Sævar og Jón.

Elínborg var með foreldrum sínum í æsku og var með þeim 1934.
Þau Guðmundur Geir giftu sig 1937, eignuðust fjögur börn, en misstu eitt þeirra nýfætt.
Elínborg átti heimili í Skuld við giftingu, en síðan á Bakkastíg 3. Þau Guðmundur Geir fluttu til Selfoss 1941, bjuggu á Stað, nú Sigtún 3 á Selfossi, til 1986, þá í Háengi 3 til ársins 1994, en þá í Grænumörk 5 þar.
Elínborg lést 1993 og Guðmundur Geir 2006.

I. Maður Elínborgar, (30. október 1937), var Guðmundur Geir Ólafsson kaupmaður, f. 22. ágúst 1911, d. 21. mars 2006.
Börn þeirra:
1. Erla Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 9. desember 1938 á Bakkastíg 3. Maður hennar Gunnar Guðnason.
2. Sigurður Pétur Guðmundsson, f. 1939, d. þriggja daga gamall.
3. Ólafur Þorbjörn Guðmundsson rafvélavirki, f. 26. apríl 1947. Kona hans Hrafnhildur Guðmundsdóttir.
4. Ingunn Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 12. október 1951. Sambýlismaður hennar Sigurður Karlsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.