Elínborg Dagmar Sigurðardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. mars 2018 kl. 16:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. mars 2018 kl. 16:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Elínborg Dagmar Sigurðardóttir''' frá Efra-Hvoli, húsfreyja, síðast í Kópavogi fæddist 8. september 1915 í Dvergasteini og lést 9. júl...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Elínborg Dagmar Sigurðardóttir frá Efra-Hvoli, húsfreyja, síðast í Kópavogi fæddist 8. september 1915 í Dvergasteini og lést 9. júlí 1991.
Foreldrar hennar voru Sigurður Bergsson verkamaður á Efra-Hvoli, f. 19. nóvember 1879 í Varmahlíð u. Eyjafjöllum, d. 27. ágúst 1943, og kona hans Jónína Sigurbjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 8. maí 1884 í Núpakoti u. Eyjafjöllum, d. 16. nóvember 1963.

Börn Sigurbjargar og Sigurðar voru:
1. Sveinn Þórarinn Sigurðsson bifreiðastjóri, f. 23. maí 1905 í Steinum u. Eyjafjöllum, d. 11. júní 1996.
2. Guðlaugur Kjartan Sigurðsson, f. 22. september 1911 í Dvergasteini, d. 27. september 1911.
3. Tómas Elías Sigurðsson, f. 30. mars 1914 í Dvergasteini, d. 26. janúar 1994.
4. Elínborg Dagmar Sigurðardóttir húsfreyja í Kópavogi, f. 8. september 1915 í Dvergasteini, d. 9. júlí 1991.

Elínborg Dagmar var með foreldrum sínum í æsku, í Dvergasteini, á Vilborgarstöðum, Seljalandi og Efra-Hvoli.
Hún eignaðist Svövu Guðríði á Efra-Hvoli 1940 og giftist Friðgeiri á árinu.
Þau bjuggu á Skjaldbreið við fæðingu Kjartans 1942, á Faxastíg 14, er þau eignuðust dreng, sem lést 10 daga gamall.
Þau Friðgeir eignuðust átta börn, en misstu dreng nýfæddan.
Fjölskyldan fluttist til Kópavogs 1962.

I. Maður Elínborgar Dagmarar, (14. desember 1940), var Friðgeir Guðmundsson sjómaður, trésmiður, f. 21. júlí 1914, d. 6. júní 2001.
Börn þeirra:
1. Svava Guðríður Friðgeirsdóttir húsfreyja, f. 4. júlí 1940 á Efra-Hvoli. Maður hennar er Sævald Pálsson frá Þingholti.
2. Guðlaugur Kjartan Friðgeirsson bifvélavirkjameistari, f. 1. desember 1942 á Skjaldbreið. Kona hans er Þorgerður Sigríður Þorgeirsdóttir frá Sælundi.
3. Drengur, f. 14. nóvember 1945 í Hvíld, d. 24. nóvember 1945.
4. Sigríður Þyrí Friðgeirsdóttir húsfreyja, f. 30. maí 1947 í Hvíld. Maður hennar er Lárus Guðberg Lárusson.
5. Sigrún Þóranna Friðgeirsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 17. maí 1948 í Hvíld. Fyrri maður hennar var Pétur Ólafsson Welker. Síðari maður hennar er Halldór Þór Guðmundsson.
6. Elínborg Fríða Friðgeirsdóttir húsfreyja í Danmörku, f. 4. apríl 1952 í Hvíld. Maður hennar er Kristján Valgeirsson.
7. Sólveig Friðgeirsdóttir húsfreyja á Laugarvatni, f. 6. júní 1953 í Hvíld. Maður hennar er Böðvar Ingi Benjamínsson.
8. Hrefna Friðgeirsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 26. maí 1956 í Hvíld. Maður hennar er Jónas Hafsteinn Jónasson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.