Elín Sesselja Guðfinnsdóttir (Herðubreið)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Elín Sesselja Guðfinnsdóttir frá Herðubreið við Heimagötu 28, húsfreyja og bóndi fæddist 1. febrúar 1935.
Foreldrar hennar voru Guðfinnur Guðmundsson skipstjóri, f. 25. júní 1912 í Hjálmholti við Urðaveg 34, d. 22. nóvember 1945, og kona hans Olga Karlsdóttir frá Eyrarbakka, húsfreyja, f. þar 26. mars 1917, d. 12. apríl 1976.

Börn Olgu og Guðfinns:
1. Guðmundur Karl skipstjóri, f. 8. janúar 1941, giftur Ellen Margréti Ólafsdóttur, f. 15. desember 1943.
2. Elín Sesselja húsfreyja og bóndi í Unnarholti í Hrunamannahreppi, f. 1. febrúar 1935. Maður hennar er Trausti Indriðason bóndi, f. 17. febrúar 1935.
3. Kjartan sjómaður, f. 13. mars 1943, d. 30. desember 2009. Kona hans var Ásta Sigurðardóttir Sigurjónssonar, f. 2. mars 1942.
4. Páll Guðfinnsson, tvíburi við Kjartan, f. 13. mars 1943, d. 9. maí 1943.
Börn Olgu og Árna Johnsen, síðari manns hennar:
5. Guðfinnur Johnsen tæknifræðingur, f. 1949.
6. Jóhannes Johnsen skrifstofumaður, f. 27. júlí 1953.

Elín var með foreldrum sínum, en faðir hennar lést er hún var á ellefta árinu. Hún var með móður sinni og síðar henni og Árna J. Johnsen síðari manni hennar, en var mikið með föðurforeldrum sínum í Brekkuhúsi.
Hún varð 3. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1952.
Þau Trausti giftu sig 1956, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu á Herðubreið við Heimagötu 28, voru bændur í Brekkuhúsi, síðan bændur í Unnarholti í Hrunamannahreppi í 37 ár. Þau búa nú á Flúðum.

I. Maður Elínar, (24. júní 1956), er Trausti Indriðason bóndi, f. 17. febrúar 1935.
Börn þeirra:
1. Guðfinnur Traustason rafvirkjameistari, kennari, f. 5. mars 1955. Kona hans Guðrún Margrét Njálsdóttir.
2. Indriði Traustason, býr í Sviss, bifvélavirki, garðyrkjumaður, f. 31. maí 1956. Fyrrum kona hans Birgitte Schmidiger.
3. Guðjón Traustason bóndi í Unnarholti, verkamaður, f. 5. mars 1959. Kona hans Anna May Carlson.
4. Guðmundur Traustason húsasmíðameistari, flugstjóri, f. 24. ágúst 1960. Fyrrum kona hans Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir.
5. Elín Jóna Traustadóttir, íþróttakennari, bóndi í Tungufelli í Hrunamannahreppi og kerfisstjóri við Menntaskólann á Laugarvatni, f. 12. júlí 1971. Maður hennar Svanur Einarsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.