Elín Árnadóttir (Skálholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2015 kl. 20:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2015 kl. 20:30 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Elín Árnadóttir.

Elín Árnadóttir húsfreyja frá Skálholti fæddist 18. september 1927 og lést 7. október 2003.
Foreldrar hennar voru Árni Sigfússon kaupmaður, f. 31. júlí 1887, d. 7. mars 1948, og kona hans, Ólafía Árnadóttir húsfreyja frá Gerðum í Garði, f. 8. maí 1895, d. 15. mars 1962.

Elín lauk gagnfræðaprófi 1943.
Maður hennar, (1947), var Gunnar Stefánsson í Gerði, f. 16. desember 1922, d. 27. desember 2010.
Þau Gunnar byggðu hús að Helgafellsbraut 36 1953 og bjuggu þar til Goss.
Þá fluttust þau til Kópavogs og bjuggu þar að Birkigrund 70 til ársins 1991. Fluttust þau þá aftur til Eyja.

Börn Elínar og Gunnars:
1. Leifur fyrrum stýrimaður, nú rannsóknamaður hjá Hafrannsóknastofnuninni og skipaskoðunarmaður, fæddur 16. febrúar 1947. Kona hans er Ingibjörg Birna Sigursteinsdóttir Marinóssonar, f. 21. september 1947.
2. Árni Gunnar rafvirkjameistari, f. 22. desember 1950. Kona hans er Erna Ingólfsdóttir Eiríkssonar, f. 24. október 1952.
3. Stefán Geir fyrrum sjómaður, starfsmaður við Íþróttamiðstöðina í Vestmannaeyjum, f. 1. febrúar 1953. Kona (skilin) var Aðalheiður I. Sveinsdóttir Tómassonar, f. 7. apríl 1954.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.