Eiríkur Jónsson (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. nóvember 2021 kl. 20:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. nóvember 2021 kl. 20:41 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Eiríkur Jónsson frá Gjábakka fæddist 20. júní 1882.
Foreldrar hans voru Jón Guðmundsson á Gjábakka, f. 31. júlí 1843, d. 29. maí 1918, og kona hans Veigalín Eiríksdóttir húsfreyja, f. 28. nóvember 1843, d. 23. júní 1884.

Systkini Eiríks voru:
1. Jónína Veigalín Jónsdóttir húsfreyja í Nýjabæ, f. 11. september 1873. Hún fór til Vesturheims frá Nýjabæ 1902 með eiginmanni, barni og tengdamóður sinni.
2. Jóhanna Sigríður Jónsdóttir, f. 15. september 1876, d. 16. apríl 1916. Hún fór til Vesturheims 1902 með manni sínum og syni.
3. Anna Steinunn Jónsdóttir húsfreyja í Selkirk í Kanada, f. 24. september 1879, d. 16. júní 1956.
Hálfsystir þeirra, samfeðra var
4. Helga Jónsdóttir, f. 7. september 1885. Hún fór til Vesturheims 1888.

Móðir Eiríks lést, er hann var tveggja ára. Hann var í dvöl í Nýjabæ í lok ársins, var í fóstri hjá Guðfinnu og Árna á Vilborgarstöðum 1886 og enn 1895.
Vinnumaður var hann á Vilborgarstöðum 1901.
Eiríkur fór til Vesturheims frá Vilborgarstöðum 1903 og settist að í Selkirk í Kanada.
Hann var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.

I. Kona hans Vestra, (30. ágúst 1910), var Valgerður Kristjánsdóttir frá Uppsölum, f. 15. apríl 1881, d. 19. desember 1959.
Börn þeirra voru:
1. Laura Cam Johnson hjúkrunarkona, f. 4. nóvember 1910 í Selkirk í Kanada, d. 5. janúar 2008 í Calcary þar.
2. Josephine.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Anita og Lorne Cam, Toronto, Canada.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.