Eiríkur Jónsson (Skýlinu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. febrúar 2018 kl. 21:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. febrúar 2018 kl. 21:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Eiríkur Jónsson á Eiríkur Jónsson (Skýlinu))
Fara í flakk Fara í leit
Eiríkur

Eiríkur Jónsson, Hásteinsvegi, fæddist á Reyðarfirði 17. desember 1894 og lést 30. júní 1970.

Fyrri kona hans hét Guðrún Steinsdóttir, dóttir Steins Sigurðssonar klæðskera.

Árið 1918 fór hann til Vestmannaeyja þar sem hann byrjaði að stunda sjóinn. Formennsku byrjaði Eiríkur með Óskar II fyrir Gísla Magnússon og var með þann bát eina vertíð. Síðan var hann formaður á Nirði.

Eftir að Eiríkur hætti á sjónum var hann forstöðumaður Verkamannaskýlisins í Vestmannaeyjum í fleiri ár.

Myndir



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. 6-7 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.