Einar Sigurðsson (Vestra-Stakkagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. júní 2020 kl. 20:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. júní 2020 kl. 20:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Einar Sigurðsson (Vestra-Stakkagerði)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Einar Sigurðsson.

Einar Sigurðsson frá Vestra-Stakkagerði, bakarameistari á Eskifirði og í Þorlákshöfn fæddist 26. mars 1955 í Vestra-Stakkagerði.
Foreldrar hans voru Jón Sigurður Jóhannesson verkamaður, framreiðslumaður, f. 20. ágúst 1925, d. 5. apríl 2006, og kona hans Sigríður Einarsdóttir frá Staðarfelli, f. 5. febrúar 1922, d. 9. júní 1989.

I. Barn Sigríðar og Vilhelms Ragnars Ingimundarsonar:
1. Gunnar Vilhelmsson múrari, f. 8. júlí 1939 á Staðarfelli. Kona hans Bjarnveig Gunnarsdóttir.
II. Börn Sigríðar og Hans Þorvaldar Sveinssonar:
2. Elín Þorvaldsdóttir húsfreyja á Seltjarnarnesi, f. 11. október 1941 í Neskaupstað. Maður hennar Pálmi Eyþórsson, látinn.
3. Anna Sigurlaug Þorvaldsdóttir húsfreyja í Þorlákshöfn, f. 19. mars 1944 í Bár í Neskaupstað. Maður hennar Már Michelsen.
4. Sæunn Þorvaldsdóttir hjúkrunarfræðingur, húsfreyja í Svíþjóð f. 8. maí 1946 í Bár í Neskaupstað. Fósturforeldrar Björn Levý Gestsson, f. 28. september 1889 og síðari kona hans Jóhanna Lárusdóttir, f. 15. maí 1013. Maður hennar Sigurður Þorsteinsson.
5. Þorvaldur Þorvaldsson sjómaður, f. 13. mars 1948 í Vestra-Stakkagerði, d. 2. mars 2009. Kona hans Sigríður Björk Þórisdóttir.
III. Barn Sigríðar og Baldurs Sigurlássonar:
6. Erla Kristinsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði og Garðabæ, f. 25. desember 1950 í Vestra-Stakkagerði, var ættleidd . Maður hennar Halldór Svavarsson, látinn.
IV. Börn Sigríðar og Jóns Sigurðar Jóhannessonar:
7. Halldór Sigurðsson bifvélavirki í Reykjavík, f. 19. desember 1953 í Vestra-Stakkagerði, d. 15. janúar 2018. Kona hans Eyrún Guðbjörnsdóttir.
8. Einar Sigurðsson bakarameistari í Þorlákshöfn, f. 26. mars 1955 í Vestra-Stakkagerði. Kona hans Arnheiður Svavarsdóttir.
9. Björk Sigurðardóttir húsfreyja í Hafnarfirði, býr í Bláskógabyggð, f. 7. maí 1957 í Vestra-Stakkagerði. Fyrrum maður hennar Víðir Ástberg Pálsson.
10. Sæmundur Sigurðsson sendibílstjóri í Reykjavík, f. 5. febrúar 1960 í Eyjum. Kona hans Elín Halla Gunnarsdóttir, látin.
11. Sigurður Sigurðsson starfsmaður Volvoverksmiðjanna í Svíþjóð, f. 27. febrúar 1964, d. 5. ágúst 1990. Kona hans Sigurjóna Örlygsdóttir, látin.

Einar var með foreldrum sínum í Vestra-Stakkagerði, og síðar á Ásavegi 30.
Hann flutti með þeim til Reykjavíkur 1962.
Einar nam bakaraiðn hjá Michelsen í Hveragerði, varð bakarameistari á Eskifirði í fjögur ár, en fyrr og síðar í Þorlákshöfn.
Þau Arnheiður Ingibjörg giftu sig 1978, eignuðust tvö börn.

I. Kona Einars, (19. ágúst 1978), er Arnheiður Ingibjörg Svavarsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 9. maí 1953 í Reykjavík. Foreldrar hennar Svavar M. Marteinsson bifreiðastjóri, f. 12. maí 1923, d. 24. júní 2007, og Kristjana Sigríður Árnadóttir bókasafnsvörður, f. 14. apríl 1937, d. 19. apríl 2013.
Börn þeirra:
1. Kristjana Svava Einarsdóttir húsfreyja, ferðamálafræðingur í Noregi, f. 8. júní 1978 í Reykjavík. Barnsfaðir hennar Ottó Freyr Jóhannsson. Maður hennar Daníel Gunnarsson.
2. Anna Sigríður Einarsdóttir frístundaleiðbeinandi í Grunnskólanum í Þorlákshöfn, f. 5. nóvember 1980 í Reykjavík, ógift, en barnsfaðir hennar Guðleifur Guðmundsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bollagarðaætt á Seltjarnarnesi. Niðjatal Einars Hjörtssonar útvegsbónda í Bollagörðum og konu hans Önnu Jónsdóttur og barnsmóður hans Sigríðar Jónsdóttur. Gylfi Ásmundsson tók saman. Þjóðsaga. Reykjavík 1990.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.