Einar Jónasson (Grundarbrekku)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. nóvember 2019 kl. 19:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. nóvember 2019 kl. 19:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Einar Jónasson (Grundarbrekku)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Einar Guðni Jónasson.

Einar Guðni Jónasson frá Grundarbrekku, múrarameistari fæddist þar 24. nóvember 1938.
Foreldrar hans voru Jónas Guðmundsson frá Refsstöðum í A-Hún., sjómaður, verkamaður, verslunarmaður, f. 9. mars 1886, d. 20. febrúar 1979, og kona hans Guðrún Magnúsdóttir frá Grundarbrekku, húsfreyja, f. þar 27. júlí 1906, d. 20. maí 1987.

Börn Guðrúnar og Jónasar:
1. Jóhanna Jónasdóttir, f. 15. júlí 1931, d. 2. október 1938.
2. Jóhann Hilmar Jónasson bifreiðastjóri á Bifreiðastöð Vestmannaeyja og hjá Vestmannaeyjabæ, f. 14. apríl 1934, d. 16. mars 2016. Kona hans er Ester Árnadóttir.
3. Einar Guðni Jónasson múrari, f. 24. nóvember 1938. Kona hans er Halldóra Traustadóttir.
4. Jóhann Jónasson verkamaður, bæjarstarfsmaður, f. 5. maí 1940. Ókvæntur.
5. Sigurbjörg Jónasdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 7. febrúar 1942. Maður hennar er Viðar Óskarsson.
6. Magnús Þór Jónasson bókhaldari, kaupmaður, framkvæmdastjóri, f. 4. maí 1947, d. 24. apríl 2019. Kona hans er Guðfinna Óskarsdóttir.

Einar var með foreldrum sínum í æsku.
Hann vann verkamannastörf, var um skeið í Fiskimjölsverksmiðjunni.
Þau Halldóra giftu sig 1961, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Betel, Faxastíg 6 við fæðingu Trausta Ragnars 1962, en fluttust á Höfðaveg 2 um 1963, hús, sem þau byggðu.
Þau fluttu til Reykjavíkur 1968, þar sem Einar nam múraraiðn hjá Ásmundi Vilhjálmssyni. Hann lauk sveinsprófi 1969, varð meistari og vann við iðnina.
Þau Halldóra búa að Garðstöðum 30.

I. Kona Einars, (26. ágúst 1961), er Halldóra Traustadóttir húsfreyja, ljósmóðir, f. 28. júní 1939 í Reykjavík.
Börn þeirra:
1. Trausti Ragnar Einarsson kennari, bifvélavirkjameistari, múrarameistari, vélvirki, f. 24. maí 1962, býr í Reykjavík. Kona hans Eva Susanne Linnéa Andersson.
2. Gunnar Jónas Einarsson matreiðslumaður í Reykjavík, f. 2. maí 1966 í Eyjum. Fyrrum kona Sigríður Lund Hermannsdóttir. Kona hans Þóra Guðbjörg Arnardóttir.
3. Fjalar Freyr Einarsson kennari, kennsluráðgjafi í Reykjavík, f. 4. júlí 1971 í Reykjavík. Kona hans Dögg Harðardóttir.
4. Sindri Reyr Einarsson tæknimaður í Reykjavík, f. 8. janúar 1980 í Reykjavík. Kona hans Solveig Ragnarsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Fjalar Freyr.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Múraratal og steinsmiða. 2. útgáfa, aukin. Þorsteinn Jónsson, Brynjólfur Ámundason. Þjóðsaga 1993.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.