Einar Híerónýmusson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júní 2015 kl. 19:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júní 2015 kl. 19:48 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Einar Híerónýmusson bóndi, síðar verkamaður á Felli, fæddist 7. september 1846 í Holtssókn u. Eyjafjöllum og lést 6. apríl 1922.
Foreldrar hans voru Híerónýmus Hallsson bóndi í Miðskála u. Eyjafjöllum, f. 22. mars 1821 og Kristín Einarsdóttir húsfreyja, f. 12. mars 1826.

Einar kvæntist Þorbjörgu 1869. Þau fluttust frá Steinum í Ásólfsskálasókn 1871 með börn Þorbjargar. Þau skildu.
Einar kvæntist Sigurborgu 1876. Hann var bóndi í Ásólfsskála 1880 með Sigurborgu, börn þeirra Sigríði og Sigurborgu og Magnús son Sigurborgar og Híerónýmus Hallsson föður Einars, í Lambhúshólskoti í Ásólfsskálasókn 1890 með sömu áhöfn.
Sigurborg fluttist til Eyja 1898, en Einar 1900 frá Skála í Holtssókn.
Þau voru í Jómsborg 1907 með Sigurborgu dóttur sinni og barni hennar Einari Vídalín Einarssyni, á Felli 1910 og 1912.
Einar lést á Felli 1922.

I. Fyrri kona Einars, (8. október 1869, skildu), var Þorbjörg Sveinsdóttir húsfreyja, f. 25. júlí 1829, d. 17. mars 1894.
Börn þeirra hér:
1. Anna Kristín Einarsdóttir, f. 23. júlí 1868, f. 9. ágúst 1868.
2. Jón Einarsson, f. 16. maí 1870, á lífi niðursetningut í Núpakoti 1880.
3. Kristín Einarsdóttir, f. 24. apríl 1874, d. 27. apríl 1874.

II. Síðari kona hans, (1876), var Sigurborg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 10. júní 1846, d. 13. október 1933.
Börn þeirra hér:
1. Sigurður Einarsson, f. 4. október 1876, d. 18. nóvember 1876.
2. Kristján Einarsson sjómaður, formaður á Hvanneyri f. 10. mars 1878, d. 16. desember 1925.
4. Sigríður Einarsdóttir, f. 1880. Hún fluttist til Vesturheims frá Seyðisfirði 1904.
3. Sigurborg Einarsdóttir verkakona, húsfreyja í Fagurhól, f. 17. október 1884, d. 10. maí 1958.
Fóstursonur Einars, barn Sigurborgar konu hans var
4. Magnús Magnússon skipstjóri og útgerðarmaður á Felli, f. 5. júlí 1874, d. 25. september 1940.
Fóstursonur Einars, barn Sigurborgar dóttur hans, var
5. Einar Vídalín Einarsson loftskeytamaður í Reykjavík, f. 28. apríl 1907, d. 4. október 1990.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.