Einar Guðmundsson (Steinsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Einar Guðmundsson bóndi á Steinsstöðum fæddist 26. mars 1834 og hrapaði til bana úr Ofanleitishamri 27. maí 1858.
Faðir hans var Guðmundur bóndi á Skíðbakka í A-Landeyjum, f. á Lágafelli þar, skírður 18. febrúar 1792, d. 27. mars 1840 í Eyjum, Magnússon bónda á Búðarhóli þar, f. 1763 í Vatnsdalskoti í Fljótshlíð, d. 26. júní 1839 á Kirkjulandi í A-Landeyjum, Jónssonar bónda í Vatnskoti, f. 1730, Magnússonar, og konu Jóns í Vatnskoti, Signýjar húsfreyju, f. 1734, d. 1. maí 1811, Brandsdóttur.
Móðir Guðmundar á Skíðbakka og fyrri kona Magnúsar á Búðarhóli var Kristín húsfreyja, f. 1755, d. 16. september 1796, Árnadóttir, ættuð úr Mýrdal.

Móðir Einars á Steinsstöðum og síðari kona Guðmundar var Málhildur húsfreyja, f. 28. júní 1798 í Klasbarðshjáleigu í V-Landeyjum, d. 18. júní 1845 á Skíðbakka, Guðmundsdóttir bónda í Voðmúlastaða-Suðurhjáleigu (Bólstað), f. 1772, d. 21. október 1840 í Suðurhjáleigu, Einarssonar bónda á Skúmsstöðum í V-Landeyjum, f. 1725, d. 29. apríl 1799, Guðmundssonar, og konu Einars á Skúmsstöðum, Ingibjargar húsfreyju, f. 1734, d. 17. ágúst 1817, Guðmundsdóttur.
Móðir Málhildar og fyrri kona Guðmundar í Bólstað var Guðrún húsfreyja, f. 1774, d. 5. október 1805, Jónsdóttir bónda í Vestri-Garðsauka í Hvolhreppi, f. 1750, d. 1793, Atlasonar, og konu Jóns, Kristínar húsfreyju, f. 1715, Bjarnadóttur.

Einar var 7 ára með ekkjunni móður sinni 1840, en faðir hans var þá nýlátinn í Eyjum. Móðir hans bjó áfram á Skíðbakka, en lést 1845. Við manntal þá var Einar fósturbarn í Norðurgarði hjá móðursystur sinni Ingibjörgu Guðmundsdóttur húsfreyju þar. Hann var þar 12 ára. Valgerður Jónsdóttir dóttir Ingibjargar var þar 14 ára.
Hann var 17 ára vinnupiltur í Norðurgarði 1850.
Einar hrapaði úr Hamrinum 27. maí 1858.

Systkini Einars á Steinsstöðum í Eyjum voru:
1. Guðmundur húsmaður á Kirkjubæ, f. 30. mars 1827, d. 16. febrúar 1865, kvæntur Guðríði Oddsdóttur.
2. Sæmundur húsmaður á Vilborgarstöðum, f. 9. júlí 1837, d. 18. október 1890, fyrr kvæntur Ástríði Hjaltadóttur, síðar Guðbjörgu Árnadóttur.
Móðursystir Einars í Eyjum var
Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Norðurgarði, f. 26. nóvember 1799, d. 29. mars 1883, kona Jóns Jónssonar bónda, f. 1. mars 1791, hrapaði til bana 21. ágúst 1851.

Einar átti börn með þrem konum.
I. Barnsmóðir hans var Geirdís Þórðardóttir vinnukona, síðar húsfreyja í Kastala og víðar, f. 1821, d. 1. febrúar 1893.
Barn þeirra var:
1. Einar Einarsson verkamaður, f. 28. ágúst 1853, d. 9. ágúst 1888.

II. Börn Einars með Valgerði Jónsdóttur frænku sinni frá Norðurgarði, f. 20. ágúst 1832, d. 7. október 1896:
2. Ingibjörg Einarsdóttir, f. 8. mars 1854, d. 24. apríl 1905.
3. Jón Einarsson á Garðstöðum, f. 27. janúar 1857, d. 10. október 1906. Kona hans var Ingibjörg Hreinsdóttir húsfreyja.

III. Kona Einars á Steinsstöðum, (20. nóvember 1857), var Kristín Jónsdóttir húsfreyja, f. 2. september 1832 á Norður-Hvoli í Mýrdal, d. 21. desember 1903 á Miðhúsum, ekkja og bústýra Ingvars Ólafssonar á Steinsstöðum 1860, síðar (26. október 1860) kona hans.
Barn Einars og Kristínar:
4. Ástríður Einarsdóttir húsfreyja á Löndum, f. 10. október 1857 í Eyjum, d. 20. júlí 1919, kona Sigurðar Jónssonar verkamanns á Löndum, f. 29. október 1859, d. 10. ágúst 1932.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónusubækur.
  • Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.