Einar Eiríksson (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. janúar 2016 kl. 14:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. janúar 2016 kl. 14:18 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Einar Eiríksson gull- og silfursmiður á Löndum fæddist 30. desember 1847 í Lágu-Kotey í Meðallandi og lést 8. október 1931 í Elmo í Utah.
Foreldrar hans voru Eiríkur Runólfsson bóndi, síðast í Lágu-Kotey í Meðallandi, f. 1. júní 1798, d. 9. júní 1851, og kona hans Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 19. desember 1801, d. 18. febrúar 1888.

Systkini Einars í Eyjum voru:
1. Sæmundur Eiríksson í Fagurlyst, f. 1825.
2. Runólfur Eiríksson á Kirkjubæ, f. 1828.
3. Kristín Eiríksdóttir á Löndum, f. 1842.
4. Vigfús Eiríksson í Nýborg, f. 1843.

Einar var með foreldrum sínum til ársins 1852, en þá varð hann tökubarn í Nýjabæ og til ársins 1861. Þá fór hann að Laxnesi í Mosfellssveit.
Hann lærði gullsmíði, fluttist frá Mosfellssveit til Eyja 1869, kvæntist Guðrúnu 1870. Þau bjuggu í Fagurlyst 1871 og 1872, á Miðhúsum 1875 og 1878, Fögruvöllum 1879, en síðan á Löndum.
Hjá þeim dvaldi Guðrún móðir Einars um skeið.
Þau Guðrún gerðust mormónar og fluttust til Spanish Fork í Utah 1880 frá Fögruvöllum. Hann stundaði iðn sína, en fluttist til Castle Valley í Utah, nam land og stundaði landbúnað og farnaðist vel.
Hann var einn þeirra, sem sendur var í trúboð til Íslands.
Þau Guðrún höfðu eignast 5 börn í Eyjum, en misstu fyrsta barnið úr kíghósta. Með þeim fóru 4 börn Vestur. Þar eignuðust þau 2 börn að auki.

Kona Einars, (6. nóvember 1870), var Guðrún Magnúsdóttir húsfreyja, f. 5. júlí 1840, d. 18. maí 1930.
Börn þeirra hér:
1. Halldóra Helga Einarsdóttir, f. 9. apríl 1871, d. 29. nóvember 1871 úr kíghósta.
2. Lilja Einarsdóttir, f. 8. október 1872, d. 26. mars 1948 í Utah.
3. Bárður Einarsson, f. 10. september 1875, d. 22. júlí 1970 í Utah.
4. Eiríkur Einarsson, f. 12. júlí 1878, d. 27. mars 1965 í Utah.
5. Helga Eiríksdóttir, f. 3. september 1879, d. 31. maí 1962 í Utah.
Börn fædd í Utah:
6. Magna Sina Einarsdóttir Eiriksson, f. 3. janúar 1884 í Spanish Fork, d. 14. maí 1890 þar.
7. Elias W. Einarsson Eiriksson, f. 8. september 1887 í Spanish Fork, d. 9. janúar 1975 í Salt Lake City, Utah.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • FamilySearch - Community Tree.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Saga Íslendinga í Vesturheimi I-V. Þorsteinn Þ. Þorsteinsson, Tryggvi J. Oleson. Winnipeg: Þjóðræknisfélag Íslendinga í Vesturheimi: Menningarsjóður 1940-1953.
  • The Icelanders in Utah. La Nora Allsted.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.