Einar Þórarinsson (Mjölni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Einar Þórarinsson frá Mjölni við Skólaveg 18, veitustjóri fæddist 20. desember 1937.
Foreldrar hans voru Þórarinn Jónsson frá Efri-Holtum u. Eyjafjöllum, sjómaður, verkamaður, verkstjóri, f. 2. maí 1905, d. 8. ágúst 1959, og kona hans Jónína Sigrún Ágústsdóttir húsfreyja, f. 14. nóvember 1910 u. Eyjafjöllum, d. 23. október 2005.

Börn Sigrúnar og Þórarins:
1. Ingólfur Þórarinsson verkamaður, bifreiðastjóri, verkstjóri, f. 24. október 1935 á Vestmannabraut 74.
2. Einar Þórarinsson veitustjóri á Ólafsfirði, f. 20. desember 1937 á Vestmannabraut 74.
3. Guðrún Þórarinsdóttir húsfreyja, f. 14. nóvember 1940 í Ráðagerði.
4. Drengur, f. 25. desember 1938 á Kirkjuvegi 39 B, d. 19. janúar 1939.
5. Drengur, f. 4. mars 1942 í Ráðagerði, d. 17. mars 1942.
6. Ágúst Yngvi Þórarinsson vélstjóri, f. 1. desember 1943 í Ráðagerði.
7. Andrés Þórarinsson stýrimaður, f. 14. september 1945 á Grímsstöðum, d. 12. nóvember 1993.

Einar var með foreldrum sínum í æsku.
Hann varð veitustjóri á Ólafsfirði.
Þau Sólveig giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Gunnólfsgötu á Ólafsfirði.
Sólveig lést 2011.

I. Kona Einars var Sólveig Anna Þorleifsdóttir húsfreyja, verkakona f. 30. ágúst 1938, d. 16. nóvember 2011. Foreldrar hennar voru Þórleifur Sigurbjörnsson frá Sveinsstöðum í Grímsey, sjómaður, f. 18. júlí 1914, d. 7. maí 1987, og Aðalheiður Karlsdóttir frá Garði í Ólafsfirði, húsfreyja, rithöfundur, f. 8. janúar 1914, d. 3. júní 1996.
Börn þeirra:
1. Aðalheiður Einarsdóttir, f. 29. ágúst 1965.
2. Þórarinn Rúnar Einarsson, f. 13. júlí 1968.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.