Einar Ágústsson (Bræðraborg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. nóvember 2018 kl. 18:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. nóvember 2018 kl. 18:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Einar Ágústsson''' frá Bræðraborg, verkamaður, bifreiðastjóri fæddist 13. apríl 1927 í Húsadal, Faxastíg 22 og lést 18. september 1984.<br> Foreld...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Einar Ágústsson frá Bræðraborg, verkamaður, bifreiðastjóri fæddist 13. apríl 1927 í Húsadal, Faxastíg 22 og lést 18. september 1984.
Foreldrar hans voru Ágúst Þorgrímur Guðmundsson verkamaður, sjómaður í Húsadal, síðar í Bræðraborg, f. 16. ágúst 1892 í Háamúla í Fljótshlíð, d. 6. febrúar 1966, og kona hans Guðný Pálsdóttir húsfreyja, f. 2. nóvember 1891 að Hlíðarenda í Fljótshlíð, d. 19. júlí 1959.

Börn Guðnýjar og Þorgríms:
1. Alfreð Bachmann Þorgrímsson vélstjóri, afgreiðslumaður, f. 23. nóvember 1914, d. 25. ágúst 1978.
2. Margrét Ágústa Ágústsdóttir ráðskona í Reykjavík, f. 14. nóvember 1918 á Ormsvelli í Hvolhreppi, d. 11. júlí 2008.
3. Þuríður Þorgrímsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 12. nóvember 1920 á Ormsvelli, Hvolhreppi, d. 22. desember 1992.
4. Hulda Ágústsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 6. október 1922 á Sólbakka, d. 20. júlí 1984.
5. Valgerður Oddný Ágústsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 22. apríl 1924 í Húsadal, d. 7. júlí 2012.
6. Andvana drengur, f. 26. mars 1926 í Húsadal.
7. Einar Ágústsson bifreiðastjóri, f. 13. apríl 1927 í Húsadal, d. 18. september 1984.
8. Sveinbjörg Þorgrímsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 28. júní 1929 í Húsadal, d. 20. ágúst 1949.
9. Svanhvít Þorgrímsdóttir húsfreyja, borgarstarfsmaður, f. 21. september 1930 í Húsadal, d. 1. október 1989.
10. Andvana stúlka, f. 7. nóvember 1933 í Húsadal.
11. Hallgrímur Þorgrímsson strætisvagnastjóri í Reykjavík, f. 26. desember 1936 í Húsadal, d. 3. maí 2011.

Einar var með foreldrum sínum í æsku, var með þeim í Húsadal og Bræðraborg. Hann var sjómaður, síðan bifreiðastjóri.
Þau Erla eignuðust tvö fyrstu börn sín á Grímsstöðum. Þau bjuggu á Hólagötu 26 frá 1955.
Einar lést 1984. Erla bjó áfram á Hólagötu. Hún lést 2018 á Sjúkrahúsinu.

I. Kona Einars var Guðbjörg Erla Haraldsdóttir frá Nikhól, húsfreyja, verslunarmaður, verkakona, f. þar 21. júlí 1931, d. 5. júní 2018 á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja.
Börn þeirra:
1. Viðar Einarsson verkamaður, f. 3. febrúar 1953 á Grímsstöðum.
2. Matthildur Einarsdóttir húsfreyja, starfsmaður á leikskóla, verkakona, f. 16. febrúar 1954 Grímsstöðum.
3. Guðný Hrefna Einarsdóttir húsfreyja, þjónustufulltrúi, f. 24. júlí 1955.
4. Ágúst Ómar Einarsson netagerðarmaður, bifvélavirki, smiður, f. 25. desember 1959 að Hólagötu 26.
5. Einar Birgir Einarsson húsasmíðameistari, f. 23. desember 1960.
6. Halla Einarsdóttir húsfreyja, ljósmyndari, f. 8. ágúst 1968.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.