Eggert Gunnarsson (Víðivöllum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2013 kl. 11:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2013 kl. 11:53 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Eggert

Eggert Gunnarsson fæddist 4. september 1922 og lést 4. janúar 1991. Foreldrar Eggerts voru Gunnar Marel Jónsson skipasmíðameistari og kona hans Sigurlaug Pálsdóttir. Eggert var sjöundi í hópi tólf alsystkina, en auk þeirra voru þrjú eldri hálfsystkini.

Eiginkona Eggerts var Jóna Guðrún Ólafsdóttir frá Víðivöllum. Þau bjuggu framan af á Víðivöllum en Eggert byggði hús á Sóleyjargötu 12 og bjuggu þau þar þaðan af. Þau áttu 6 börn; Ólaf, Svövu, Guðfinnu, Gunnar, Sigurlaugu og Óskar.

Eggert var skipasmiður og lærði hann þá iðn af föður sínum. Hann lauk sveinsprófi í iðninni árið 1944. Eggert tók við Dráttarbraut Vestmannaeyja þegar faðir hans þurfti að hætta vegna heilsu.

Óskar Kárason skrifaði formannavísu um Eggert:

Eggert á lög nú leggur
liðtækur skipasmiður,
niður Gunnars á gniði
gamla Erlingi damlar.
Nær sá í fisk á færi,
flæða, ef gefur næði.
Færan má fírinn bæra
fjallamann góðan kalla.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Eggert Gunnarsson

Myndir


Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.