Eggert Böðvarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Eggert Böðvarsson fæddist (1750).
Foreldrar hans voru Böðvar Jónsson sýslumaður í Eyjum, f. um 1715, d. í maí 1754, og kona hans Oddrún Pálsdóttir húsfreyja, f. um 1720, d. 25. apríl 1799. Þau munu hafa búið á Oddsstöðum.

Systkini Eggerts voru:
1. Ragnheiður Böðvarsdóttir Westmann, f. 1744, d. 15. september 1836.
2. Jósep Böðvarsson í Norðurgarði, f. 1748, d. 3. nóvember 1785.

Skráð er, að Eggert hafi verið timburmaður í Noregi.
(Dánarskrár voru fyrst haldnar í Eyjum 1785, gloppóttar 1813-1816. Fermingar-, hjónabands- og fæðingaskrár voru fyrst haldnar 1786).


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.