Draumbær

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júní 2007 kl. 10:07 eftir Johanna (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júní 2007 kl. 10:07 eftir Johanna (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Draumbær

Húsið Draumbær stendur utan byggðar fyrir ofan hraun. Jörðin Draumbær var ein af Ofanleitishjáleigum. Draumbær stóð nær beint vestur af Steinsstöðum en íbúðarhúsið, sem var reist árið 1912, var rifið nokkru fyrir aldamótin 2000. Um nokkurt skeið var stundaður fjárbúskapur í útihúsunum en þau voru einnig rifin fyrir síðustu aldamót.

Núverandi Draumbær var reistur árið 2000 og stendur nokkru sunnar en gamli bærinn. Í Draumbæ bjuggu árið 2006 Einar Hallgrímsson og Margrét Íris Grétarsdóttir.