Dráttarbraut Vestmannaeyja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. nóvember 2016 kl. 21:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. nóvember 2016 kl. 21:33 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þann 21. maí árið 1925 var settur fundur á Borg með þeim tilgangi að koma á fót félagsskap til að byggja slipp eða dráttarbraut í Vestmannaeyjum fyrir litla báta og skip. Á fundinn mættu:

Slippurinn
Slippurinn í desember 1973.

Fékk félagið nafnið Dráttarbraut Vestmannaeyja hf. og er með elstu hlutafélögum í Vestmannaeyjum. Eftir að búið var að stofna félagið var Gunnar Marel Jónsson forstöðumaður. Ákveðið var að senda hann til Noregs til þess að leita eftir tilboði í braut handa félaginu. Ferðin gekk vel og fyrirtækið Mjölnir í Bergen smíðaði vagninn og spilið. Fyrsti báturinn var tekinn upp um haustið 1925. Hann hét Garðar. Í honum átti Filippus Árnason hlut, en hann átti einnig síðasta bátinn sem fór á flot af þessari braut þrjátíu og fjórum árum seinna, Létti. Dráttarbraut Vestmannaeyja þjónustaði bátaflotann í Vestmannaeyjum í um 60 ár.



Heimildir