Daníel Magnússon eldri (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. júní 2015 kl. 12:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. júní 2015 kl. 12:12 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Daníel Magnússon húsmaður á Kirkjubæ fæddist 1758 á Önundarstöðum í A-Landeyjum og lést 11. nóvember 1827 á Kirkjubæ.
Foreldrar hans voru Magnús Jónsson bóndi á Önundarstöðum, f 1715, d. 23. ágúst 1785, og kona hans Margrét Vigfúsdóttir húsfreyja, f. 1728, d. 6. nóvember 1799.

Daníel var bróðir Guðrúnar Magnúsdóttur húsfreyju, f. 1767, d. 14. október 1839.
Hann var bóndi á Önundarstöðum 1786-1787, var síðan hjá Vigfúsi bróður sínum þar uns hann fluttist til Eyja.
Hann var húsmaður á Kirkjubæ við andlát 1827.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.