Dýrfinna Ingvarsdóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Dýrfinna Ingvarsdóttir frá Hellnahóli u. Eyjafjöllum, húsfreyja í Norðurbæ á Kirkjubæ fæddist 7. júlí 1900 og lést 1. desember 1986.
Faðir hennar var Ingvar bóndi á Hellnahóli undir Eyjafjöllum, f. 12. október 1864, d. 14. maí 1910 í Bræðraborg, skömmu eftir flutning til Eyja, jarðsettur í Eyjum, Einarsson vinnumanns í Snotru í Landeyjum 1860, vinnumanns í Kirkjuvogi í Höfnum, Gull. 1870, f. 1843, d. 7. ágúst 1877, Sigurðssonar bónda í Voðmúlastaða-Miðhjáleigu í A-Landeyjum 1817-1838, f. 20. mars 1792 í Efrihól undir Eyjafjöllum, d. 14. júní 1864 á Núpi þar, Sighvatssonar, og síðari konu Sigurðar, (30. október 1828, skildu), Guðrúnar húsfreyju, f. 1807, d. 18. janúar 1874, Guðmundsdóttur.
Sigurður og Guðrún voru einnig foreldrar Sighhvats á Vilborgarstöðum.
Móðir Ingvars á Hellnahóli og barnsmóðir Einars var Sólrún, síðar húsfreyja á Hellnahóli, f. 7. september 1839, d. 5. maí 1921, Þorvaldsdóttir (Sólrún varð síðari kona Þórðar bónda á Hellnahóli, bróður Einars barnsföður síns); Þorvaldur var bóndi á Krossi II (Krosshjáleigu) í A-Landeyjum 1834-1861, f. 1801 í Skíðbakkahjáleigu, d. 30. maí 1871 í Tjarnarkoti þar, Magnússon, en kona Þorvaldar (15. október 1833) og móðir Sólrúnar var Ingibjörg húsfreyja, f. 11. maí 1812, d. 17. maí 1870, Bjarnadóttir.

Móðir Dýrfinnu og kona (1890) Ingvars á Hellnahóli var Ástríður húsfreyja, bjó í Víðidal 1930, f. 25. júlí 1859, d. 10. júlí 1937, Sigurðardóttir bónda á Borgareyrum og Hvammi undir Eyjafjöllum, f. 9. mars 1825, d. 12. júlí 1887, Sigurðssonar bónda í Voðmúlastaða-Miðhjáleigu 1817-1838, f. 1792, d. 1864 (sami og faðir Einars föður Ingvars), Sighvatssonar, og fyrri konu Sigurðar (1. október 1814), Ragnhildar húsfreyju, f. 21. júlí 1794, d. 23. janúar 1828, Árnadóttur.
Móðir Ástríðar og fyrri kona Sigurðar á Borgareyrum var Dýrfinna húsfreyja á Borgareyrum og í Hvammi, f. 13. ágúst 1830 í Krýsuvíkursókn, d. 2. maí 1878, Kolbeinsdóttir frá Litlakoti í Hvalsnessókn, bónda í Suðurkoti við Krýsuvík, en vinnumaður í Ólafshúsum 1855, f. 20. júlí 1795, d. 8. janúar 1860, Jónssonar, og konu Kolbeins, Vigdísar húsfreyju í Suðurkoti 1835, f. 16. júlí 1788, d. 29. ágúst 1839, Sigurðardóttur.

ctr


Foreldrar Dýrfinnu Ingvarsdóttur, hjónin Ingvar Einarsson og Ástríður Sigurðardóttir.


ctr


Sex af börnum hjónanna á Hellnahóli, Ingvars og Ástríðar.

Aftari röð frá vinstri:
1. Sólrún húsfreyja í Eyjum, f. 9. okt. 1891, d. 21. ágúst 1974, gift Sveini Sigurhanssyni vélstjóra og múrara, f. 21. júní 1892, d. 6. desember 1963.
2. Guðbjörg Ingvarsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 28. júní 1897, d. 2. september 1987, gift Sveinbirni Einarssyni trésmið, f. 12. júní 1890, d. 13. ágúst 1984.
3. Dýrfinna húsfreyja á Kirkjubæ, f. 7. júlí 1900, d. 1. desember 1986, gift Sigurði Gottskálkssyni frá Hraungerði í Eyjum, verkamanni og bónda á Kirkjubæ, f. 23. ágúst 1894, d. 5. apríl 1955.
4. Jóhanna húsfreyja í Neskaupstað 1930, f. 13. okt. 1901, d. 2. nóvember 1937. Gift Guðna Sveinssyni sjómanni á Norðfirði, f. 6. maí 1894, d. 15. nóvember 1975.
Fremri röð frá vinstri:
1. Einar Ingvarsson sjómaður í Eyjum, f. 9. okt. 1891, tvíburi við Sólrúnu, d. 18. maí 1968, kvæntur Guðrúnu Eyjólfsdóttur húsfreyju, f. 4. febr. 1898, d. 29. nóvember 1980.
2. Ágúst Sigurður Ingvarsson verkamaður, f. 27. júní 1890, d. 25. nóvember 1963.
Sjá nokkra afkomendur í Bliki 1960: Hjónin frá Hellnahóli.
Barn Ingvars Einarssonar og Ragnhildar Þórðardóttur:
7. Guðni Ingvarsson matsveinn, bryti, f. 17. júlí 1901, d. 5. október 1975.

Dýrfinna var með foreldrum sínum á Hellnahóli til 1909, er þau fluttu til Eyja með Sólrúnu, Guðbjörgu og Jóhönnu Júlíu, en þá var hún tökubarn í Hvammi hjá Magnúsi Sigurðssyni móðurbróður sínum og Þuríði Jónsdóttur konu hans.
Faðir hennar lést í maí 1910 í Bræðraborg.
Ástríður móðir Dýrfinnu fluttist að Hvammi og var þar vinnukona við manntal 1910, og þar voru systurnar Dýrfinna og Jóhanna Júlía fósturbörn.
Dýrfinna var þar vinnukona 1917, fluttist til Eyja 1918, en var vinnukona í Hvammi 1920.
Þau Sigurður voru leigjendur á Túnsbergi 1922, giftu sig í nóvember á því ári, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Hraungerði við fæðingu Sigurástar 1923 og Ingunnar 1926, voru þá vinnuhjú í Vallartúni í þrjú ár. Þau byggðu húsið við Landagötu 23 1929, bjuggu þar til 1939, er þau keyptu og fluttust að Norðurbæ á Kirkjubæ og voru bændur þar meðan bæði lifðu, en Sigurður lést 1955.
Dýrfinna og Sigurður Gotthard sonur hennar fluttu þá til Reykjavíkur, en áður höfðu dætur hennar sest þar að. Hún keypti íbúð að Laugavegi 27b og bjó þar með Sigurði syni sínum og Oddhildi konu hans. Síðan keypti hún íbúð í Álftamýri 10 og bjó þar, uns hún fluttist að Hrafnistu.
Dýrfinna vann hjá Sláturfélagi Suðurlands til 1975.
Hún lést 1986.

I. Maður Dýrfinnu, (18. nóvember 1922), var Sigurður Gottskálksson sjómaður, verkamaður, bóndi, organisti, f. 23. ágúst 1894, d. 5. apríl 1955. Þau Sigurður voru systrabörn að skyldleika, hún dóttir Ástríðar, hann sonur Sigurbjargar Sigurðardætra.
Börn þeirra:
1. Sigurást Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4. nóvember 1923, d. 23. desember 1980. Maður hennar Snorri D. Halldórsson.
2. Ingunn Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 7. júlí 1926, d. 11. júlí 2017. Maður hennar Þorsteinn B. Sigurðsson.
3. Sigurður Gotthard Sigurðsson bifreiðastjóri, f. 1. desember 1937, d. 9. nóvember 2015. Kona hans Oddhildur Guðbjörnsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.