Carl Jóhann Gränz

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. september 2019 kl. 13:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. september 2019 kl. 13:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Carl Jóhann Gränz“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Carl Jóhann Gränz.

Carl Jóhann Gränz málarameistari, trésmíðameistari fæddist 22. júlí 1887 í Reykjavík og lést 14. nóvember 1967.
Foreldrar hans voru Olaf Grenz klæðskeri, sænskrar ættar, og Anna Sigríður Guðmundsdóttir, síðar (1901), húsfreyja á Laugavegi 50 í Reykjavík, f. 2. des. 1853, d. 13. júní 1913.

Carl var með móður sinni og Samúel manni hennar á Laugavegi 50 1901.
Hann lærði trésmíði hjá Guðmundi Jakobssyni í Reykjavík og lauk prófi frá Iðnskólanum þar, fékk meistararéttindi í iðninni 1930.
Hann fluttist til Eyja 1907, var leigjandi í Hlíð 1910, í Dal við gifting 1911, leigjandi á Lögbergi 1914 og 1916, á Hrauni 1920. Hann byggði húsið Karlsberg á Heimagötu 20, var kaupmaður þar með Guðrúnu Ólafsdóttur 1927 og 1930, síðan á Haukabergi og síðast í Vegg.
Carl stundaði trésmíðar, en lærði jafnframt málaraiðn og fékk réttindi, meistarabréf 4. mars 1943.
Hann lagði gjörva hönd á margt, byggði hús, stofnaði húsgagnavinnustofu og verslun 1929 og rak hana í allmörg ár.
Hann fluttist til Selfoss 1942, starfaði þar við málaraiðn hjá Kaupfélagi Árnesinga og kenndi lærlingum.
Þau Þórfinna giftu sig 1911, en skildu. Þau bjuggu í fyrstu í Dal og þar fæddist Ólafur Adólf 1912.
Hann kvæntist Guðrúnu Sigríði 1924, eignaðist með henni þrjú börn í Eyjum.

Cal var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona Carls Jóhanns, (19. nóvember 1911, skildu), var Þórfinna Finnsdóttir, f. 28. maí 1891, d. 15. nóvember 1976.
Barn þeirra:
1. Ólafur Adólf Gränz húsgagnasmíðameistari, leikari, kennari, listamaður, leiguílstjóri, f. 4. mars 1912 í Dal, d. 14. ágúst 1960.

II. Síðari kona hans, (10. september 1924 í Reykjavík), var Guðrún Sigríður Ólafsdóttir frá Vestri-Torfastöðum í Fljótshlíð, húsfreyja, f. 10. september 1897, d. 2. janúar 1957.
Börn þeirra:
2. Áki Guðni Gränz, málarameistari, listamaður, f. 26. júní 1925 á Karlsbergi, d. 4. febrúar 2014.
3. Herbert Gränz málarameistari á Selfossi, f. 12. apríl 1930 á Karlsbergi, Heimagötu 20, d. 3. febrúar 2011.
4. Gunnar Carl Gränz málarameistari, myndlistarmaður á Selfossi, f. 30. nóvember 1932 á Karlsbergi.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Íslenskir málarar - Saga og málaratal. Kristján Guðlaugsson. Málarameistarafélag Reykjavíkur 1982.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.