Carl Henning Bohn verslunarstjóri

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. febrúar 2016 kl. 21:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. febrúar 2016 kl. 21:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Carl Henning Bohn verslunarstjóri“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Carl Henning Bohn verslunarstjóri fæddist 1825 og lést 28. janúar 1863 í Eyjum.

Hann kom að Garðinum frá Kaupmannahöfn 1858 og tók við starfinu af Conrad Lintrup.
Hans er getið sem meðlims í Lestrarfélaginu 1862.
Hann fór til Kaupmannahafnar 1861. Í forföllum hans gegndi Jóhann Bjarnasen verslunarstjórastarfinu. Bohn kom aftur 1862, en lést í Eyjum 1863.
Carl Bohn átti við langvarandi veikindi að stríða, hefur að líkum sótt til lækninga í Kaupmannahöfn 1862. ,, ...dó eftir langvarandi sjúkdóm, er síðast var samfara vatnssýki‘‘. Hann var jarðsettur 6. febrúar 1863, en ,,grafinn upp aftur 24. ágúst eftir beiðni hlutaðeigandi ... og líkið flutt til Kaupmannahafnar. Bohn var ókvæntur. Við starfi hans tók Jóhann Bjarnasen.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.