Brynja Reyndal Henrýsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júní 2015 kl. 22:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júní 2015 kl. 22:03 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Brynja Reyndal Henrýsdóttir húsfreyja fæddist 7. janúar 1934 og lést 19. júlí 1996.

Foreldrar hennar voru Kristín Stefánsdóttir húsfreyja frá Búðarfelli, f. 13. júlí 1916, d. 16. maí 2001, og maður hennar Óskar Henry Herulf Franzson bifreiðastjóri, f. 1. apríl 1912, d. 13. nóvember 1990.

Brynja ólst upp á Búðarfelli og gekk í barnaskóla í Eyjum.
Hún fluttist til Bandaríkjanna með Guðlaugu dóttur sína og bjó þar, en fluttist heim nokkru fyrir dauða sinn.

I. Barnsfaðir Brynju var Pétur Breiðfjörð.
Barn þeirra:
1. Guðlaug Pétursdóttir, f. 2. október 1950. Hún var tekin í fóstur af Sigurði Stefánssyni móðurbróður Brynju og Rögnu Vilhjálmsdóttur konu hans. Þegar Brynja fluttist til Bandaríkjanna tók hún Guðlaugu með sér.

Brynja var tvígift.
II. Fyrri maður hennar var bandarískur hermaður, en þau skildu.
Börn þeirra voru:
2. Guðmundur R., f. 15. janúar 1952.
3. Kristinn K., f. 26. janúar 1953.

III. Síðari maður Brynju var bandarískur hermaður, en þau skildu.
Barn þeirra var:
4. Elísabet M., f. 11. apríl 1969.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.