Brynjólfur Brynjólfsson (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. desember 2017 kl. 17:05 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. desember 2017 kl. 17:05 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Brynjólfur Brynjólfsson vinnumaður fæddist 24. nóvember 1825 í Miðskála u. Eyjafjöllum og lést 27. maí 1866 á Kirkjubæ.
Foreldrar hans voru Brynjólfur Brynjólfsson bóndi á Vilborgarstöðum, síðar bóndi undir Eyjafjöllum, f. 21. febrúar 1791 í Skipagerði í V-Landeyjum, d. 26. maí 1866 á Kirkjulæk í Fljótshlíð, og kona hans Guðný Erlendsdóttir húsfreyja, f. 3. desember 1788 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 18. júní 1844.

Brynjólfur var bróðir Sigríðar Brynjólfsdóttur í Hólshúsi, f. 28. apríl 1822, d. 4. júlí 1888 í Utah.

Brynjólfur var með foreldrum sínum í Miðskála 1835, með þeim í Efstakoti 1840 og 1845, vinnumaður í Miðskála 1850.
Hann fluttist til Eyja 1852 og var vinnumaður á Gjábakka til 1853, fyrirvinna hjá Ingveldi Guðmundsdóttur ekkju á Kirkjubæ 1854, vinnumaður á Vilborgarstöðum 1855 og 1856, í Háagarði 1857-1860, á Vesturhúsum 1861-1863, í Presthúsum 1864, niðursetningur í Stakkagerði 1865.
Brynjólfur lést á Kirkjubæ 1866, niðursetningur, „úr kvefsótt“.
Hann var ókvæntur.

I. Barnsmóðir hans var Dýrfinna Guðnadóttir, síðar húsfreyja í Dölum, f. 2. september 1823, d. 31. maí 1866.
Barn þeirra var
1. Einar Brynjólfsson, f. 6. febrúar 1859, d. 12. febrúar 1859 úr ginklofa.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.