Breiðibakki

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Bærinn Breiðibakki stóð utan byggðar, sunnarlega á Heimaey, rétt norðan við Klaufina. Breiðibakki var svonefnt nýræktarland en Páll Oddgeirsson, kaupmaður og útgerðarmaður ræktaði upp jörðina og fékk ábúð fyrir henni á fjórða áratug síðustu aldar. Stærð jarðarinnar var 7,18 hektarar. Búskapur var stundaður á Breiðabakka fram yfir 1960 en síðasti ábúandi þar var Trausti Eyjólfsson, síðar ráðsmaður á Bændaskólanum Hvanneyri. Hin síðari ár hafa tómstundabændur haft aðstöðu á Breiðabakka með sauðfé og hesta.

Þjóðhátíð á Breiðabakka.

Þjóðhátíð Vestmannaeyja var haldin á Breiðabakka fjögur ár eftir gos, eða þar til vikur hafði verið hreinsaður úr Herjólfsdal.