Breiðablik

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. ágúst 2005 kl. 00:41 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. ágúst 2005 kl. 00:41 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Breiðablik

Húsið Breiðablik stendur við Breiðabliksveg 5. Húsið var áður skráð á Kirkjuveg 45. Breiðablik var byggt árið 1908 og byggt eftir teikningum Sveins Jónssonar, arkitekts.

Í fjölda mörg ár var þar til húsa Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum. Í gosinu 1973 voru öll siglinga- og fiskileitartæki skólans send upp á meginlandið með strandferðaskipinu Heklu.

Í Breiðabliki býr Hartmann Ásgrímsson ásamt konu og börnum.


Heimildir

  • Guðjón Ármann Eyjólfsson, Vestmannaeyjar - byggð og eldgos. Reykjavík, 1973.