Bratti

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. janúar 2007 kl. 18:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. janúar 2007 kl. 18:42 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Bratti var grasbrekka með stöllum austan í Tangahæðinni. Var fyrrum haft um hæðina alla. Hér voru áður fyrir ofan allmörg húsmannshús. Var sú byggð kölluð „í Bratta“ eða aðeins Bratti, en áður fyrr var hér kallað Kastali eða í Kastala. Á Tangahæðinni var Tangaverzlunin byggð. Hannes lóðs taldi, að Kastali hefði staðið þar, sem síðar var Vesturvegur 5.


Heimildir

  • Þorkell Jóhannesson. Örnefni í Vestmannaeyjum. Reykjavík: Hið íslenzka þjóðvinafélag, 1938.